2015
Fréttabréf félags eldri borgara Rangárvallasýslu

Fréttabréf félags eldri borgara í Rangárvallasýslu frá 1. jan. til september 2015
Stjórn félagsins skipa: Formaður Guðrún Aradóttir, ritari Margrét Þórðardóttir, gjaldkeri Þórunn Ragnarsdóttir, meðstjórnendur Svavar Hauksson og Sigrún Ólafsdóttir ,varamenn Ingibjörg Þorgilsdóttir og Júlíus P. Guðjónsson , skoðunarmenn Sváfnir Sveinbjarnarson og Anna María Tómasdóttir, varamenn Sigrún Sveinbjarnardóttir og Rósa Aðalsteinsdóttir
í skemmtinefnd eru Sigríður Erlendsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Bragi Gunnarsson,
Ólöf Kristófersdóttir og Þorgerður Jóna Guðmundsdóttir,
í spilanefnd á Hvolsvelli eru Guðrún Sigurðardóttir, Ólöf Kristófersdóttir og Kristín Sigurðardóttir í spilanefnd á Hellu er Guðríður Bjarnadóttir.

Spilin verða áfram á fimmtudögum kl;: 14.00 til 16:00 til skiptis á Hellu og Hvolsvelli og eru á Hellu 22 janúar.

Í handverki til vors verða leiðbeinendur Hjálmar Ólafsson í Njálsbúð föstudaga kl: 13:30 til 16:00 og byrjar 9.janúar handverk í Menningarhúsinu á Hellu verða þar leiðbeinendur Guðrún Óskarsdóttir og Brynja Bergsveinsdóttir þriðjudaga og miðvikudaga kl: 13:30 til 16:00.og byrja 13. janúar.
Gjald á önn er 1.000,- pr mann 
Handverkssýning er áætluð 2. og 3 maí og verður nú í Menningarhúsinu á Hellu.
Nánar auglýst síðar

Hringur kór eldri borgara starfar á mánudögum kl 16:00 til 18:00  og hefst  12. janúar, alltaf pláss fyrir nýja félaga í allar raddir, upplýsingar veita Jón Ragnar Björnsson formaður 894-9953/ 571-7150 og Kristín Sigfúsdóttir söngstjóri 483-9953/ 663-6217

Leikfimi er á Hvolsvelli í Hvolnum mánudaga og fimmtudaga kl: 10:00, ganga og skokk er í íþróttahúsinu á Hvolsvelli þriðjudaga kl: 9:50 til 10:30 og ganga í íþróttahúsinu á Hellu föstudaga kl: 11:00 til 12:00

Boccia er í íþróttahúsinu á Hvolsvelli mánudaga og hefst kl: 9:10 og föstudaga og hefst 
kl: 8:50 upplýsingar veitir Júlíus P. Guðjónsson 431-1441/663-7065.

Áætlað er að hafa aðalfund félagsins í Menningarhúsinu á Hellu fimmtudaginn 9: apríl og hefst hann kl: 13:00 síðan verður spilað á eftir.Nánar auglýst síðar.

Sparidagar eldri borgara fyrir Rangárvallasýslu verða í Örkinni dagana 1. til  6. mars og eru þeir með Suðurland, Hafnarfirði og Blindrafélaginu, Verð fyrir 2.manna herbergi er 46.900 - aukagjald fyrir einbýli er 9.000.-
Dagskrárstjóri er Níels Árni Lund og Haukur Ingibergsson honum til halds og trausts

Messa á Uppstigningadag, degi aldraðra, þann 14 maí verður Kálfholtskirkju rútuferð verður eins og áður í þessa messu , nánar auglýst síðar.

Sumarstarfið:  Sundleikfimi verður í sumar í sundlaugunum á Hellu og Hvolsvelli ef næg þátttaka næst.
Hið sívinsæla pútt á Strandavelli verður á þriðjudögum og byrjar uppúr miðjum maí, nánar auglýst síðar Allar upplýsingar eru hjá Mörtu Arngrímsdóttur .487-8249/868-4511

Vorferðin í júní verður fimmtudaginn 25. júní farið verður í uppsveitir Árnessýslu,
nánar auglýst síðar.

Búið er að panta í ferð dagana 26. til  29. júlí farið verður á Dalvík gist þar í 2 nætur og farið þaðan út í Hrísey og í Svarfaðardal síðan verður farið á Ólafsfjörð og Héðinsfjörð til Siglufjarðar og gist þar 1 nótt  Áætlað verð er 75.000,- sama verð fyrir 1 og 2manna herbergi innifalið í verði er gisting 3 nætur, 3 kvöldverðir og rútufarið.
Þeir félagar sem hafa hug á að koma með vinsamlega skráið nöfn ykkar sem fyrst hjá Þórunni í síma 487-5922eða 892-5923 því hótelin verða að fá töluna vegna gistingar allavega mánuði fyrir brottför helst fyrr því þegar er kominn biðlisti hjá þeim

Í ágúst er áætlað að fara Kaldadal og um Borgarfjörð fimmtudaginn 27, ágúst 
nánar auglýst síðar

Í september á að athuga með að fara réttarferð ef næg þátttaka verður. Vinsamlega látið vita ef áhugi er fyrir því til Þórunnar 487-5922/892-5923

Fréttir vegna málefna eldri borgara sem berast í tölvupósti t.d. frá Landsambandi eldri borgara fara beint á heimasíður Rangárþings eystra, Rangárþings ytra og Ásahrepps þar í pakka “Félagsstarf eldri borgara” svo félagsmenn geti séð það þar

Vonum við hjá stjórn að þetta verði gott ár hjá okkur eins og ævinlega.

Félagsmenn vinsamlega auglýsið starf okkar og komið á framfæri að allir Rangæingar 60 ára og eldri séu velkomnir í félagið, það er alltaf gott að fá nýja félaga og þar með nýjar hugmyndir.

Guðrún Aradóttir , Margrét Þórðardóttir, Þórunn Ragnarsdóttir, Svavar Hauksson, Sigrún Ólafsdóttir, Ingibjörg Þorgilsdóttir og Júlíus P. Guðjónsson