Það var mikið fjör í leikskólanum í dag. Þá fóru nemendur leikskólans í hlaupaferð ásamt starfsfólkinu. Lögregla fylgdi hópnum með blikkandi ljósum og þótti það mjög sepnnandi. Það voru blautir en ánægðir hlauparar sem komust að leiðarenda. Að launum fengu allir krakkarnir íþróttanammi sem þau voru mjög sátt með.

Meðfylgjandi myndir eru af hlaupurunum kátu.