Félagsmiðstöðin Tvisturinn í Rangárþingi eystra óskar eftir starfsfólki í kvöldvinnu. Um er að ræða tvö kvöld í viku, mánudagskvöld og fimmtudagskvöld en auk þess eru viðburðir á vegum Samfés sem starfsfólkið þarf að mæta á. 

Tilvalið hlutastarf fyrir þá sem vilja starfa með hressum og skemmtilegum ungmennum og þróa starfið í félagsmiðstöðinni. 

Umsóknir, nánari upplýsingar og fyrirspurnir sendist á olafurorn@hvolsvollur.is

Umsóknarfrestur er til 23. ágúst.

Ólafur Örn Oddsson

Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Rangárings eystra.