Eyfellingar eftir góðan hreinsunardag
Eyfellingar eftir góðan hreinsunardag

Nú er vorið farið að minna rækilega á sig og sumarið er alveg á næsta leiti, allavega samkvæmt dagatalinu. Þetta má líka vel merkja hjá íbúum og fleiri og fleiri sjást á vappi í görðunum sínum í vorverkunum. Vorverkin í dreifbýlinu eru líka margvísleg, stór og smá og mikið líf og fjör að hefjast hjá bændum.

Það er jú nefnilega mjög mikilvægt að við íbúar og aðrir er eiga fyrirtæki og eignir hér á svæðinu, s.s. sumarbústaði, stöndum saman í því að halda umhverfinu í okkar fallega sveitarfélagi hreinu. Margt smátt gerir eitt stórt og um leið og fólk er orðið meðvitað um að hvert einstakt verk í hreinsun nærumhverfisins gerir mikið gagn þá verður verkið auðvelt og jafnvel bara skemmtilegt.

Ungmennafélagið Trausti undir Eyjafjöllum boðaði til hreinsunar meðfram þjóðveginum og öðrum hreppsvegum í sinni sveit í byrjun apríl og eiga þau stórt hrós skilið fyrir að vera okkur hinum svona góð fyrirmynd. Hugmyndin er frábær og eftir góða hreinsunarferð var komið saman að Skálakoti og átt góða stund. Hreinsunardag sem þennan ættu öll félagasamtök, stofnanir og fyrirtæki að setja á sína dagskrá. Eiga saman góðan tíma og láta gott af sér leiða fyrir umhverfið á sama tíma.

Það er rétt að minna svo sérstaklega á það að ganga vel frá öllum sorpílátum, sérstaklega þegar von er á vindi, því það hefur borið við að eftir vindasama daga hefur mikið af rusli fokið úr tunnum í þéttbýlinu. Það er frekar leiðinlegt að sjá pappa og plast hangandi í trjám og runnum út um víðan völl.

Stöndum saman og fegrum umhverfið okkar.