Tvær framtakssamar konur í Rangárþingi eystra hafa opnað netverslun með fallegum kvennfatnaði. Þetta eru þær Anna Margrét Aðalsteinsdóttir og Harpa Mjöll Kjartansdóttir og nefndu þær búðina sína The magical M. Anna Margrét og Harpa Mjöll leggja sig fram um að vera með vandaðar vörur í góðum stærðum og þjónustan er í fyrirrúmi. Eins og áður sagði er þetta netverslun en þær stöllur munu halda opið hús þegar nýjar vörur koma inn en það fyrsta var 23. apríl sl. Nánari upplýsingar um netverslunina má finna hér á facebook og þar má einnig sjá myndir af fatnaðinum