Dagur tónlistarskólanna verður haldinn hátíðlegur víða um land laugardaginn 26. febrúar n.k.
Af því tilefni ætlar Tónlistarskóli Rangæinga að hafa opið hús í húsnæði sínu á Hvolsvelli frá kl. 15:00 – 17:00 og mun þá jafnvel óma tónlist úr kennslustofum.
Síðan um kl. 16:15 munu nokkrir af nemendum skólans halda tónleika fyrir gesti og gangandi.

Vonumst til að sjá sem flesta og heitt verður á könnunni.

Auglýsingin frá Tónlistarskóla Rangæinga