Birna Sigurðardóttir hefur verið ráðin skólastjóri Hvolsskóla í Rangárþingi eystra. Birna hefur verið deildarstjóri og staðgengill skólastjóra í Hvolsskóla undanfarin ár. Birna er Rangæingur og búsett á Hvolsvelli. Umsóknarfrestur var til og með 20. mars 2015. Alls bárust sjö umsóknir um starfið. Sveitarstjórn fór yfir allar umsóknir og tóku fjóra umsækjendur í viðtal. Ísólfur Gylfi Pálmason sveitarstjóri skýrði frá ráðningunni í Hvolsskóla í morgun að viðstöddum öllum nemendum og starfsfólki skólans.