Árleg jólatrjáasala Skógræktarfélags Rangæinga verður sunnudaginn 17.
desember n.k frá kl. 13-16 í Bolholtsskógi á Rangárvöllum.  Þá býðst fólki að koma í skóginn og höggva sitt eigið tré.  Eingöngu verður í boði að höggva stafafuru á staðnum en einnig verður til sölu takmarkað magn af grenitrjám, þau þarf að panta með fyrirvara.
  

Að venju verður boðið uppá hressingu í skóginum.  Upplýsingar eru í síma 8692042.