Á fundinum var farið yfir þau helstu verkefni sem liggja fyrir og þau málefni sem sveitarfélagið hér og íbúar þurftu að glíma við í eldgosinu í Eyjafjallajökli og sumir glíma enn við. Auk þess sem litið er til reynslu síðasta árs við framvindu þessa goss.

Elvar Eyvindsson, fyrrum sveitarstjóri og núverandi sveitarstjórnarmaður er í Almannavarnarteyminu.