F U N D A R G E R Ð


144. fundur Byggðarráðs Rangárþings eystra  haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins að Hlíðarvegi 16, Hvolsvelli, fimmtudaginn 27. ágúst 2015 kl. 8:10

Mætt: Kristín Þórðardóttir, Lilja Einarsdóttir, Christiane L. Bahner,  Ágúst Ingi Ólafsson, skrifstofustjóri sem ritaði fundargerð og Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri og formaður byggðarráðs sem setti fund og stjórnaði honum.

Hann leitaði eftir athugasemdum við boðun fundarins en engar komu fram.

Erindi til byggðarráðs:

1.Mennta- og menningarmálaráðuneytið bréf dags. 15.08.15, eftirfylgni með innleiðingu laga um grunnskóla nr. 91/2008.
Sveitarstjóra falið að svara erindinu og vinna áfram að málinu.

2.Mennta- og menningarmálaráðuneytið bréf dags. 18.08.15, eftirfylgni með innleiðingu laga.
      Sveitarstjóra falið að svara erindinu og vinna áfram að málinu.

3.National parking, náttúruhlið við Seljalandsfoss.
Lagt fram til kynningar.

4.Bréf Rangárþings eystra til Sambands íslenskra sveitarfélaga dgas. 10.08.15 varðandi vindorku og vindmyllur.
Lagt fram til kynningar.

5.Mennta-og menningarmálaráðuneytið bréf dags. 05.08.15, eftirfylgni með úttekt á Leikskólanum Örk.
      Sveitarstjóra falið að svara erindinu og vinna áfram að málinu.

6.Bréf Jóns Sigurðssonar og Jórunnar Helenu Jónsdóttur dags. 10.08.15 varðandi ágang búfjár.
Erindinu vísað til landbúnaðarnefndar.

7.Bréf til sýslumannsins á Suðurlandi, umsögn  vegna leyfis skv. lögum nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald í Eldstó Café, Hvolsvelli.
Staðfest.

8.Sýslumaðurinn á Suðurlandi, bréf dags. 14.08.15 vegna tækifærisleyfis Bjarka Freys Sigurjónssonar kt. 120893-2709.
Staðfest.

9.Bréf Mennta- og menningarmálaráðherra, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Kennarasambands Íslands og Heimili og skóla dags. júlí 2015 varðandi læsi og drög að samningi eflingu læsis.
Sveitarstjórn samþykkir að taka þátt í átakinu.  Lilja Einarsdóttir, oddviti er tengiliður sveitarfélagsins við verkefnið.

10.Bréf frá Hrefnu Lind Lárusdóttur og Trausta Ólafssyni ódags., hugmynd að leiklistarstarfsemi í félagsheimilinu Gunnarshólma.
Byggðarráð tekur vel í erindið og felur sveitarstjóra að vinna áfram að málinu.

Fundargerðir samstarfs sveitarfélaga:

1.241. fundur stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands 22.06.15 Staðfest.
2.Fundur fjallskilanefndar Fljótshlíðar 05.01.15 Staðfest.
3.Fundur fjallskilanefndar Fljótshlíðar 10.02.15 Staðfest.
4.Fundur fjallskilanefndar Fljótshlíðar 22.06.15 Staðfest.
5.Fundur fjallskilanefndar Fljótshlíðar 12.08.15 Staðfest.
6.Stjórnarfundur Héraðsbókasafns Rangæinga 16.07.15  Staðfest.
7.Stjórnarfundur Héraðsbókasafns Rangæinga  20.07.15 Staðfest.
8.Fundur stjórnar þjónustusvæðis vegna málefna fatlaðs fólks á Suðurlandi 12.08.15 Staðfest.
9.496. fundur stjórnar SASS 07.08.15 Staðfest.
10.23. fundur stjórnar Kötlu jarðvangs 05.08.15 Staðfest.
11.26. fundur fræðslunefndar Rangárþings eystra 11.05.15

Mál til kynningar:

1.Vottunarstofan Tún, Aðalfundarboð.
2.Þjónustusvæði Suðurlands í málefnum fatlaðs fólks, bréf dags. 19.08.15
3.Greinargerð vegna hugmynda um aðgengi tónmenntakennara Hvolsskóla að húsnæði Tónlistarskóla Rangæinga á Hvolsvelli.


Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 8:45


__________________________________________________
Ísólfur Gylfi Pálmason             Lilja Einarsdóttir


__________________________________________________
Kristín Þórðardóttir             Christiane L. Bahner