10.01.2012
Njálunámskeið í Sögusetrinu á Hvolsvelli.
Hefst 25. janúar 2012, lýkur 31. mars 2012.
Öll miðvikudagskvöld frá 19:30 til 21:30 og alla laugardaga frá 10:00 til 12:00.
Námskeiðsgjald aðeins 5.000 krónur á mann.
Umsjón: Sigurður Hróarsson bókmenntafræðingur.
Brennu-Njálssaga lesin ofan í kjölinn og krufin til mergjar. Fyrirlestrar, spjall og umræður. M.a.: Uppruni og tilurð, heimildir og handrit, helstu persónur, tímatal, rittengsl, aldur, staðfræði, höfundur, samtíminn, listfengi og lífsskoðanir, tilgangur og boðskapur.
Skráning og nánari upplýsingar hjá umsjónarmanni. Sími 487 8781 & 618 6143.www.njala.is / njala@njala.is
Til baka

