Fjarnám og fjarfundarbúnaður
Goðaland í Fljótshlíð
Að Goðalandi í Fljótshlíð hefur verið sett upp aðstaða fyrir nemendur sem kjósa að stunda nám sitt úr heimabyggð. Þar er að finna góða lesaðstöðu, fundar- og hópvinnuaðstöðu og internettengingu.
Aðstaðan er nemum að kostnaðarlausu en viðkomandi nemandi þarf að sækja um leyfi til notkunar. Hægt er að gera það á skrifstofu Rangárþings eystra.
Fjarnámsaðstaða á Hvolsvelli
Í tónlistarskólanum hefur verið komið upp fjarnámsbúnaði og fjarfundaaðstöðu. Til að bóka stofuna þarf að hafa samband við Héraðsbókasafn Rangæinga á Hvolsvelli www.bokrang.is