Markmið með þjónustu við fatlaða er að skapa þeim forsendur til að lifa sem eðlilegustu lífi. Fatlaðir
eiga rétt á almennri þjónustu sem veitt er af Félagsþjónustunni á
grundvelli laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 og laga um
málefni fatlaðra nr. 59/1992. Sá sem býr utan stofnunar og er andlega
eða líkamlega fatlaður getur sótt um að fá einstakling (liðveitanda) sér
til aðstoðar. Markmiðið með liðveislu er að rjúfa einangrun, veita
persónubundinn stuðning og efla þannig einstaklinginn. Í sumum tilvikum
eiga fatlaðir rétt á akstursþjónustu.