Félagsþjónusta

Suðurlandsbraut 1-3, 2. hæð
850 Hella
Sími: 487-8125
Heimasíða: http://www.felagsmal.is/


Þjónusta við íbúa á öllum aldri

Félagsþjónustan er samstarfsverkefni Ásahrepps, Rangárþings ytra, Rangárþings eystra, Mýrdalshrepps og Skaftárhrepps. Íbúar þessara svæða eiga því rétt á þjónustu stofnunarinnar.

Skrifstofa - viðtalstímar
Höfuðstöðvar þjónustunnar eru á Hellu en starfsaðstaða félagsþjónustu þarf að vera góð vegna viðtala við skjólstæðinga á öllum aldri og til þess að unnt sé að gæta fyllsta trúnaðar og nærgætni við vinnslu mála. Starfsmenn geta einnig haft aðstöðu á skrifstofum sveitarfélaganna til að geta boðið íbúum þjónustu sem næst heimabyggð. Einnig fara starfsmenn á heimili fólks til að veita þjónustu ef það hefur ekki tök á að fara á næstu skrifstofu sveitarfélags eða á skrifstofu Félagsþjónustunnar


Starfsmenn Félagsþjónustunnar eru bundnir þagnarskyldu um einkamál þeirra er njóta þjónustunnar.

Félagsmálanefnd Rangárvalla- og V-Skaftafellssýslu
Fulltrúar Rangárþings eystra í nefndinni eru:

Aðalmenn

Ásta Brynjólfsdóttir

Björk Arnardóttir


Varamenn

Sólveig Eysteinsdóttir

Guðbjörg Júlídóttir


Netfang: rang.vest@simnet.is

Katrín Þorsteinsdóttir, félagsmálastjóri og félagsráðgjafi
katrin@felagsmal.is
Símatími: mánudaga milli 10-11 og fimmtudaga milli 14-15 

 


Rúnar Halldórsson, félagsmálaráðgjafi
runar@felagsmal.is

 

Jóhanna Lind Ásgeirsdóttir, deildarstjóri heimaþjónustu

johanna@felagsmal.is, GSM: 861-5284

 

 

Kristín Ósk Ómarsdóttir, félagsráðgjafi

kristin@felagsmal.is


 

Á lífsleiðinni geta allir staðið frammi fyrir erfiðleikum af einhverjum toga, smáum sem stórum. Félagsráðgjafar Félagsþjónustunnar veita einstaklingum og fjölskyldum ráðgjöf og byggist þjónustan á að koma til móts við þarfir þeirra sem þangað leita með hjálp til sjálfshjálpar að leiðarljósi. Félagsráðgjafarnir hafa það hlutverk að veita upplýsingar og leiðbeiningar um félagsleg réttindamál annars vegar og stuðning vegna félagslegs og persónulegs vanda hins vegar auk þess að leiðbeina fólki um og vísa í þau úrræði sem henta hverjum og einum. Félagsleg ráðgjöf tekur m.a. til ráðggjafar vegna: atvinnuleysis, veikinda, húsnæðisvanda, fjárhagsvanda, fötlunar, öldrunar, málefni barna og ungmenna, fjölkskylduvanda, málefni útlendinga og áfengis- og vífuefnavanda. Félagsþjónusta er lögbundin og ber sveitarfélögum að veita hana. Ekki hika ef þú telur þig þurfa að nota þjónustuna. Hafðu samband.

Verkefni félagsþjónustunnar
    • Málefni aldraðra
    • Málefni fatlaðra
    • Fjárhagaðstoð
    • Fræðsla
    • Félagsleg ráðgjöf
    • Forvarnir
    • Barnaverndarmál
    • Félagsleg heimaþjónusta
    • Umsagnir fyrir verðandi sumadvalarforeldra
    • Umgengismál
    • Umsagnir fyrir verðandi fósturforeldra
    • Umsagnir í ættleiðingum
    • Umsagnir fyrir verðandi dagforeldra
    • Félagslegt leiguhúsnæði

     

     

    Vilt þú verða að liði?

    Til að hægt sé að sinna lögbundinni þjónustu og stuðningi við einstaklinga og fjölskyldur þarf að hafa hæft fólk til að sinna slíkum verkefnum. Ef þú hefur áhuga á að gerast stuðningsaðili t.d. liðveitandi, tilsjónarmaður eða stuðningfjölskylda hikaðu þá ekki vð að hafa samband. Starfsmenn félagsþjónustunnar gera jafnframt úttektir á heimilum er hyggjast taka börn til sumardvalar eða í fóstur. En enginn má lögum samkvæmt taka vandalaus börn til dvalar án leyfis barnaverndarnefndar í heimasveit sinni. Hafið því samband ef þið hyggist taka slíkt verkefni á hendur.

    Þjónusta við aldraða miðar að því að þeir geti búið í heimahúsi við sem eðlilegast heimilislíf svo lengi sem kostur er. Aldraðir eiga rétt á allri almennri þjónustu sem veitt er á Félagsþjónustunni samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 og lögum um málefni aldraða nr. 124/1999. Sérstaklega er vert að vekja athygli á félagslegri heimaþjónustu og möguleikum á heimsendum mat. Heimahjúkrun er hins vegar skipulögð og sinnt af heilsugæslum á svæðinu en oft er náin samvinna um fyrirkomulag og framkvæmd þjónustunnar þannig að þörfum hins aldraða sé sem best mætt.