14.06.2012161. fundur sveitarstjórnar Rangárþings eystra
161. fundur sveitarstjórnar Rangárþings eystra haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins að Hlíðarvegi 16, Hvolsvelli, fimmtudaginn 14. júní 2012 kl. 12:00
Mætt: Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri, Lilja Einarsdóttir, Haukur G. Kristjánsson, Kristín Þórðardóttir, Guðmundur Ólafsson, Elvar Eyvindsson, Ágúst Ingi Ólafsson, skrifstofustjóri og Guðlaug Ósk Svansdóttir, oddviti sem setti fundinn og stjórnaði honum.
Oddviti bauð fundarmenn velkomna um leið og hann leitaði eftir athugasemdum við fundarboðið. Engar athugasemdir komu fram.
Fundargerð ritaði Ágúst Ingi Ólafsson.
Dagskrá:
- Kosning oddvita og varaoddvita út kjörtímabilið.
Haukur G. Kristjánsson kjörinn oddviti
Guðlaug Ósk Svansdóttir kjörin varaoddviti
Samþykkt með 5 atkvæðum, einn sat hjá EE.
Bókun
Fráfarandi oddviti þakkar sveitarstjórn fyrir góð fundasköp og samvinnu á oddvitatímanum og óskar sveitarstjórn þeirrar gæfu að vinna áfram vel saman með hagsmuni íbúa að leiðarljósi og efla sveitarfélagið. Einnig eru starfsmönnum og íbúum sveitarfélagsins þökkuð samvinnan á tímabilinu.
Fráfarandi oddviti óskar nýjum oddvita velfarnaðar í nýju hlutverki.
- Kosning byggðarráðs til eins árs.
Aðalmenn: Varamenn:
Guðlaug Ósk Svansdóttir, formaður Haukur G. Kristjánsson
Lilja Einarsdóttir, varaformaður Ísólfur Gylfi Pálmason
Kristín Þórðardóttir Elvar Eyvindsson
Samþykkt samhljóða.
- Drög að samþykkt um hundahald í Rangárþingi eystra, síðari umræða.
Afgreiðslu frestað.
- Drög að samþykkt um kattahald í Rangárþingi eystra, síðari umræða.
Drögin samþykkt samhljóða með smávægilegri breytingu. Samþykktinni vísað til umsagnar heilbrigðisnefndar.
- Sýslumaðurinn á Hvolsvelli, bréf dags. 31.05.12, beiðni um umsögn vegna leyfis skv. lögum nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald sem og reglugerðar nr. 585/2007. Um er að ræða umsókn Fljótshlíðinga ehf kt. 531205-1030 þar sem sótt er um gististað í flokki II, að Goðalandi Rangárþingi eystra. Einnig fylgir svarbréf sveitarstjóra dags. 05.06.12
Staðfest.
- Hlíðarvegur 16, Hvolsvelli, lagfæring á þaki og þakköntum í samstarfi við aðra eignaraðila hússins.
Samþykkt að vinna málið áfram.
- Karlakór Rangæinga, bréf dags. í maí 2012, beiðni um styrk.
Samþykkt að veita styrk kr. 60.000,-
- Héraðsnefnd Rangæinga óskar eftir staðfestingu sveitarstjórnar Rangárþings eystra á landsskiptum. Um er að ræða stofnun lóðar úr Stórólfsvöllur, landnr. 164196. Ný lóð fær heitið Stórólfsvöllur, lóð A, landnr. 220933, stærð 8,8ha. Lögbýlisréttur fylgir áfram Stórólfsvöllum, landnr. 164196.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við landsskiptin.
- Eyja Þóra Einarsdóttir kt. 270155-3839 og Jóhann Frímannsson kt. 140952--3709, bréf dags. 12.06.12, beiðni um landsskipti. Um er að ræða stofnun íbúðarhúsalóðar úr Moldnúpi, landnr. 163783. Óskað er eftir að nýja lóðin fái heitið Moldnúpur 1, landnr. 220958, stærð 1,0 ha. Lögbýlisréttur fylgir áfram Moldnúpi, landnr.163783.
Einnig er óskað eftir að heitinu Hellnahóll verði breytt í Moldnúp 2, landnr. 205543, stærð 2,2 ha.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við landsskiptin.
- Sigríður Kjartansdóttir kt. 141030-3109, bréf dags. 04.06.12, beiðni um landsskipti. Um er að ræða stofnun lóðar úr Eyvindarholti, landnr. 163761.
Óskað er eftir að nýja lóðin fái heitið Ljósárbakki, landnr. 220946, stærð 26000 fm.
Lögbýlisréttur fylgir áfram Eyvindarholti, landnr. 163761.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við landsskiptin.
- Tillaga að fundarhléi sveitarstjórnar.
Tillaga um að sveitarstjórn Rangárþings eystra tekur sér fundarhlé frá 15. júní til 13. september 2012. Byggðarráði falin fullnaðarafgreiðsla mála þann tíma.
Samþykkt samhljóða.
- Skeiðvangur ehf. bréf dags. 06.06.12, beiðni um rekstrarstyrk.
Samþykkt að veita styrk kr. 181.000,-
Guðmundur Ólafsson vék af fundi undir þessum lið.
- Björgunarsveitin Dagrenning, bréf dags. 06.06.12, beiðni um rekstrarstyrk.
Samþykkt að veita styrk kr. 173.000,-
- Ungmennafélagið Þórsmörk, bréf dags. 07.06.12, umsókn um styrk vegna 17. júní hátíðarhalda.
Samþykkt að veita styrk kr. 75.000,-
- Deiliskipulag í Skógum.
Bókun vegna deiliskipulags að Skógum:
Ytri - Skógar, Rangárþingi eystra, deiliskipulag fyrir byggingar, aðkomu og samgöngur að Skógum.
Deiliskipulagstillagan fyrir skipulagssvæðið nær til alls mannvirkjasvæðis i Ytri Skógum norðan þjóðvegar nr. 1. Svæðið afmarkast af ánni Kvernu í austri. Brekkubrún er norðurjaðar skipulagssvæðisins fram að fossbrún. Vesturmörk svæðisins eru mörk friðlýsingar á Skógaá. Suðurjaðar er í þjóðvegi 1 frá brú á Skógaá. Þaðan í túnjaðri að Kvernu. Stærð skipulagssvæðisins er um 200 ha að flatarmáli. Í gildandi aðalskipulagi Rangárþings eystra 2003-2015, er svæðið skilgreint sem þéttbýliskjarni með þjónustu og stofnanalóðum. Í nýju deiliskipulagi fyrir svæðið er gert ráð fyrir að núverandi tjaldstæði verði færð, vegtengingar og bílastæði uppfærð auk þess sem settir verða út byggingarreitir fyrir verslunar- og þjónustuhús. Þá gerir tillagan ráð fyrir nýrri vegtengingu inn á Fimmvörðuháls, þar sem neðsti hluti vegarins er færður til austurs. Einnig er gert ráð fyrir byggingum íbúðarhúsa á svæði tengt byggðasafni Skóga.
Í samræmi við 40.gr skipulagslaga nr. 123/2010 hefur lýsing vegna deiliskipulags að Ytri-Skógum verið auglýst/kynnt almenningi, og var það gert 14. mars 2012.
Lýsing deiliskipulags var einnig send til umsagnar hjá Skipulagsstofnun, Umhverfisstofnun auk fjölda annarra umsagnaraðila.
Haldnir hafa verið fundir með hagsmunaaðilum í Skógum svo sem ferðaþjónustuaðilum 19. mars 2012 og með bændum í Skógum 30. apríl 2012.
Þá hefur deiliskipulagstillagan til samræmis við 40.gr skipulagslaga nr. 123/2010 verið kynnt almenningi bæði með auglýsingu í blöðum og með íbúafundi, 24. maí 2012.
Sveitarstjórn Rangárþings eystra samþykkir deiliskipulagstillögu fyrir Ytri-Skóga, og mælist til að tillagan verði auglýst í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr.123/2010.
Rúnar Guðmundsson, byggingar- og skipulagsfulltrúi mætti á fundinn undir þessum lið og útskýrði deiliskipulagið.
- Lagfæringar á húsnæði Hvolsskóla og Íþróttamiðstöðvar sbr. bréf skólastjóra Hvolsskóla 25.11.2010. Erindinu vísað til sveitarstjórnar á 112. byggðarráðsfundi 31. maí 2012.
Hjálmar Ingvarsson mætti á fundinn og fór yfir hugsanlegar leiðir og kostnað.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að breyta gryfjugólfi í sal skólans í samræmi við umræður á fundinum, framkvæmdin er afturkræf.
- Kosning kjörstjórna kjördeilda vegna forsetakosninga 30. júní 2012.
Eftirtaldir skipaðir í kjörstjórnir:
Kjördeild 1 í Félagsheimilinu Hvoli
Aðalmenn: Varamenn:
Guðjón Einarsson, formaður Ágúst Kristjánsson
Auður Friðgerður Halldórsdóttir Jórunn Jónsdóttir
Guðrún Ósk Birgisdóttir Sigurður Sigurðsson
Kjördeild 2 í Seljalandsskóla
Aðalmenn: Varamenn:
Baldur Björnsson, formaður Guðrún Inga Sveinsdóttir
Guðmundur Viðarsson Katrín Birna Viðarsdóttir
Ragna B. Aðalbjörnsdóttir Berglind Hilmarsdóttir
Samþykkt samhljóða.
- Breyting á fulltrúa í fræðslunefnd.
Gerð er tillaga um að Guðmunda Þorsteinsdóttir víki úr nefndinni en í hennar stað komi Benedikt Benediktsson. Varamaður í stað Benedikts Benediktssonar Ragnheiður Kristjánsdóttir.
Samþykkt.
- Drög að samþykkt um kjör kjörinna fulltrúa í Rangárþingi eystra og greiðslur fyrir nefndastörf , fyrri umræða.
Drögunum vísað til síðari umræðu.
- Leifur Bjarki Logason, beiðni um stöðuleyfi fyrir veitingavagn við Skóga.
Sveitarstjórn Rangárþings eystra samþykkir samhljóða að veita leyfið, fyrir sitt leyti, til reynslu þar sem að deiliskipulag í Skógum hefur ekki verið formlega samþykkt. Mikil áhersla er lögð á hreinlæti og góða umgjörð. Uppfylla skal öll tilskilin leyfi til rekstursins.
- Jón Gísli Harðarson, beiðni um styrk vegna Naflahlaups.
Samþykkt að styrkur verði að hámarki kr. 50.000,- sem verður greiddur út þegar fyrir liggur uppgjör hlaupsins.
- Ályktun vegna Landeyjahafnar
Sveitarstjórn Rangárþings eystra tekur undir kröfu bæjarstjórnar Vestmannaeyja um mikilvægi þess að Landeyjahöfn verði opin allt árið. Tilkoma Landeyjahafnar hefur nú þegar breytt miklu fyrir sveitarfélögin beggja vegna og mikill vilji er til að nýta fjölmörg sóknarfæri sem henni fylgja. Má þar nefna ýmsa möguleika á samstarfi sveitarfélaganna, þjónustu hvers konar, sem og flæði vinnuafls á milli svæða. Til þess að af því geti orðið verður þó að tryggja að höfnin veiti þjónustu allt árið.
Sveitarstjórnin gerir sér grein fyrir því að það tekur tíma að vinna höfnina út úr byrjunar¬örðugleikum. Breytinga er þörf í og við höfnina auk þess sem núverandi ferja er afar óheppileg til siglinga yfir vetrartímann vegna þess hversu djúpt hún ristir. Af þeim sökum hvetur sveitarstjórn Rangárþings eystra samgönguyfirvöld til þess að kanna af fullri alvöru þann möguleika að öflug farþegaferja sigli í Landeyjahöfn ef og þegar Herjólfur tekur upp siglingar í Þorlákshöfn vegna sandburðar í vetur. Jafnvel þótt slík ferja gæti ekki siglt með bíla þá myndi hún geta tryggt samneyti milli svæða, stuðlað að öflugri ferðamennsku og gefið íbúum og atvinnulífi á svæðinu færi á að þróast áfram í þá jákvæðu átt sem tilkoma Landeyjahafnar hefur gefið færi á. Sveitarstjórn Rangárþings eystra lýsir sig reiðubúna til að koma að frekari vinnslu málsins ef þurfa þykir.
Ályktunin samþykkt samhljóða.
- Fyrirspurn frá fulltrúum D-lista um jarðhitaleit í Rangárþingi eystra
Þann 21. júlí 2011 lögðum við fram tillögu um jarðhitaleit í sveitarfélaginu. Þann 16. desember 2011 var samþykkt breytingartillaga okkar við fjárfestingaáætlun fyrir árið 2012 sem var á þá leið að kr. 2.000.000 yrði varið til jarðhitaleitar í sveitarfélaginu á árinu. Í ljósi efasemda meirihlutans um réttindamál í þessum efnum og þess að lítið hefur frést af málinu frá haustdögum 2011 spyrjum við eftirfarandi spurninga:
1. Hefur verið leitað afstöðu Orkuveitu Reykjavíkur til málsins, og ef svo er, hver er hún?
2. Hafa áhugasamir aðilar gefið sig fram við sveitarstjóra vegna borunar hitastigulshola á landi þeirra?
3. Hvaða áform hefur meirihlutinn um jarðhitaleit í sveitarfélaginu á árinu?
Hvolsvelli 12. júní 2012
Elvar Eyvindsson
Kristín Þórðardóttir
Svör varðandi fyrirspurn v. jarðhitaleit í Rangárþingi eystra.
1. Sveitarstjóri og oddviti hafa fundað með forstjóra og helstu forsvarsmönnum Orkuveitu Reykjavíkur vegna málefna er tengjast Orkuveitu Reykjavíkur. Þar var m.a. fjallað um jarðhitaleit í Fljótshlíð. Orkuveitan vill á engan hátt taka þátt í þeirri leit að svo stöddu og er ekki tilbúin að leggja fjármagn til verkefnisins.
2. Einn áhugasamur landeigandi hefur sýnt þessum rannsóknum áhuga og annar hefur heitið því að kanna sameiginlegan áhuga á jarðhitaleit á svæði sem hann á, ásamt nokkrum öðrum eigendum jarðarinnar.
3. Í framhaldi af umræðum um 3. lið fyrirspurnar samþykkir sveitarstjórn samhljóða að fela sveitarstjóra að kanna möguleika á borun á hitastigulshola í landi sveitarfélagsins við Goðaland á árinu.
- Fyrirspurn vegna tillögu D-listans um viðhorfskannanir, hugmyndagátt og svæði fyrir aðsendar greinar á heimasíðu sveitarfélagsins.
Þann 11. nóvember 2011 lögðum við fram tillögu um viðbætur við þá nýja heimasíðu sveitarfélagsins sem voru eftirfarandi:
1. Viðhorfskannanir. Gert er ráð fyrir sérstöku svæði á heimasíðunni þar sem sveitarstjórn getur lagt óformlegar viðhorfskannanir fyrir íbúa vegna hinna ýmsu málefna.
2. Hugmyndagátt. Svæði þar sem íbúar kæmu á framfæri tillögum sínum um hvaðeina sem að sveitarfélaginu snýr. Byggðaráð fjalli um ábendingar sem berast með þessum hætti og vísar þeim til viðeigandi nefndar eða sveitarstjórnar til umfjöllunar ef ástæða þykir til.
3. Aðsendar greinar. Svæði þar sem íbúar og aðrir geta komið á framfæri skoðunum sínum eða hugðarefnum sem tengjast viðfangsefnum sveitarfélagsins. Ritstjórn væri í höndum Byggðaráðs og sveitarstjóra.“
Gert var ráð fyrir að það efni sem sett væri á heimasíðuna með þessum hætti væri aðgengilegt öllum.
Tillögunni var vísað til frekari vinnslu við heimasíðugerð hjá sveitarfélaginu og nú þegar hefur verið komið upp vísi að hugmyndagátt og er það jákvætt. Við spyrjum; hvaða efnismeðferð hafa hinir þættir tillögu okkar hlotið og er líklegt að þeir líti dagsins ljós á árinu?
12. júní 2012
Elvar Eyvindsson
Kristín Þórðardóttir
Varðandi fyrirspurn D-listans um viðhorfskannanir, hugmyndagátt og svæði fyrir aðsendar greinar.
1. Viðhorfskannanir.
Það er vel framkvæmanlegt. Skoða þarf hver það er sem á að sjá um að setja upp þessar kannanir, utanumhald og eftirfylgni.
2. Hugmyndagátt.
Hugmyndagátt er á heimasíðunni og hefur verið reynslukeyrð frá því í maí 2012. Vel framkvæmanlegt en huga þarf að því hver heldur utan um það, umsýsla og eftirfylgni.
3. Aðsendar greinar.
Nú þegar er tekið við auglýsingum, tilkynningum og aðsendum greinum í bæði fréttabréf og á heimasíðu. Hægt er að setja upp svæði sem heitir aðsendar greinar.
Samþykkt að óska eftir því að Guðmundur Ágúst Sæmundsson komi á kynningarfund og kynni Hugveituna.
- Staðfesting sveitarstjórnar á veitingu einfaldrar ábyrgðar vegna lántöku Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs. hjá Lánasjóði sveitarfélaga.
Sveitarstjórn Rangárþings eystra samþykkir hér með að veita einfalda ábyrgð vegna lántöku Sorpstöðvar Rangárvallasýslu hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð kr. 15.000.000,- í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggja fyrir fundinum. Er ábyrgð þessi veitt sbr. heimild í 2. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, og er hún óskipt (in solidum) gagnvart kröfuhafa, en innbyrðis skiptist hún í hlutfalli við eignarhluti í Sorpstöð Rangárvallasýslu. Til tryggingar ábyrgðinni standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sömu laga. Ábyrgðin tekur til allra greiðslna sem og hvers kyns kostnaðar sem hlýst af vanskilum. Er lánið tekið til að fjármagna kaup á belta- og traktorsgröfu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Sveitarstjórn skuldbindur hér með sveitarfélagið sem eiganda Sorpstöðvar Rangárvallasýslu til að breyta ekki ákvæði samþykkta Sorpstöðvarinnar sem leggur hömlur á eignarhald að félaginu að því leyti að félagið megi ekki fara að neinu leyti til einkaaðila.
Fari svo að Rangárþing eystra selji eignarhlut sinn í Sorpstöð Rangárvallasýslu til annarra opinberra aðila, skuldbindur Rangárþing eystra sig til að sjá til þess að jafnframt yfirtaki nýr eigandi á sig ábyrgð á láninu að sínum hluta.
Jafnframt er Ísólfi Gylfa Pálmasyni kt. 170354-3039, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess að staðfesta f.h. Rangárþings eystra veitingu ofangreindrar ábyrgða með áritun á lánssamninginn.
Bókunin samþykkt samhljóða.
Fundargerðir nefnda – ráða sveitarfélagsins:
- 112. fundur Byggðarráðs 31.05.12 Staðfest.
- 9. fundur Umhverfis- og náttúruverndarnefndar 30.05.12
Svar við eftirtöldum liðum í fundargerðinni:
Umhverfisstefna R.e. vinnuplagg
Samþykkt að fá Jón Stefánsson, kennara til þess að aðstoða við samræmingu á umhverfisstefnu skólans og sveitarfélagsins.
Önnur mál:
Stígur meðfram þjóðvegi 1.
Sveitarstjóra falið að hafa samband við Vegagerðina og senda upplýsingar um stöðu mála til nefndarinnar.
Sólheimahringurinn
Hjálmar Ingvarsson er að vinna að málinu.
Fundargerðin staðfest.
- 9. fundur fræðslunefndar 24.05.12 Staðfest.
Fundargerðir samstarfs sveitarfélaga:
- 117. fundur barnaverndarnefndar Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu bs.
- 55. fundur byggingarnefndar Rangárþings 01.06.12
Liðir í fundargerð byggingarnefndar sem tilheyra Rangárþingi eystra:
720-2012 Baldvinsskáli, Rangárþingi eystra - ósk um leyfi til að rífa fjallaskála.
721-2012 Stóragerði 27, Rangárþingi eystra - leyfi til að skipta um glugga og klæða hús.
722-2012 Rauðuskriður, Rangárþingi eystra – leyfi til að setja upp tækjahús.
723-2012 Hvolsvegur 9, Rangárþingi eystra – leyfi fyrir smáhýsi á baklóðinni.
724-2012 Kollabær, Rangárþingi eystra – byggingarleyfi fyrir stækkun sumarhúss.
725-2012 Torfastaðir 4, lóð 1, Rangárþingi eystra – byggingarleyfi fyrir skemmu.
726-2012 Goðaland, Fljóthlíð, Rangárþingi eystra – leyfi til innri breytinga á húsi.
727-2012 Hallskot lóð 1, Rangárþing eystra – byggingarleyfi fyrir sumarhúsi.
Framangreindir liðir staðfestir.
- 1. fundur stýrihóps um skipulag miðhálendisins 30.05.12
- 142. fundur stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu 07.06.12
Sveitarstjórn hvetur til þess að sveitarstjórnir á svæði Sorpstöðvarinnar fundi í sameiningu um framtíðaráform urðunarstaðarins á Strönd.Formanni Sorpstöðvarinnar falið að boða til fundar um málið.
- 215. stjórnarfundur Sorpstöðvar Suðurlands bs. 14.05.12
- 216. stjórnarfundur Sorpstöðvar Suðurlands bs. 29.05.12
- 142. fundur Heilbrigðisnefndar Suðurlands 01.06.12
- 797. fundur stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 25.05.12
Erindi til kynningar:
- Umhverfisráðuneyti, bréf dags. 30.05.12, dagur íslenskrar tungu.
- Landgræðsla ríkisins, bréf dags. 29.05.12, útfall Holtsóss.
- Forsætisráðuneytið, bréf dags. 30.05.12, erindi Rangárþings eystra vísað til innanríkisráðuneytisins.
- Landskerfi bókasafna, Aðalfundarboð 23.05.12
- Innanríkisráðuneytið, bréf dags. 25.05.12, tilkynning um endanlega úthlutun vegna sérþarfa fatlaðra nemenda í grunnskólum fjárlagaárið 2012.
- Mýrdalshreppur, bréf dags. 23.05.12, athugasemdir við drög að Aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2012-2028.
- Lögmenn Suðurlandi, minnisblað. Álit um réttarstöðu svokallaðra Almenninga og Þórsmerkur.
- Sjálfsmatsskýrsla Hvolsskóla 2011-2012.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:00
Guðlaug Ósk Svansdóttir
Ísólfur Gylfi Pálmason
Haukur G. Kristjánsson
Lilja Einarsdóttir
Kristín Þórðardóttir
Elvar Eyvindsson
Guðmundur Ólafsson
Til baka