10.03.2011

144. fundur sveitarstjórnar Rangárþings eystra

144. fundur sveitarstjórnar Rangárþings eystra  haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins, Hlíðarvegi 16, Hvolsvelli, fimmtudaginn 10. mars 2011 kl. 08:30

Mætt:  Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri, Lilja Einarsdóttir, Ásta Brynjólfsdóttir, varamaður Hauks G. Kristjánssonar, Birkir Arnar Tómasson, varamaður Kristínar Þórðardóttur, Guðmundur Ólafsson, Elvar Eyvindsson, Ágúst Ingi Ólafsson, skrifstofustjóri  og Guðlaug Ósk Svansdóttir, oddviti sem setti fundinn og stjórnaði honum.


Oddviti bauð fundarmenn velkomna um leið og hann leitaði eftir athugasemdum við fundarboðið. Engar athugasemdir komu fram.



Fundargerð ritaði Ágúst Ingi Ólafsson.



Dagskrá:

Erindi til sveitarstjórnar:

1. 1103005 Fjallskilanefnd Fljótshlíðar, umsókn um styrk til uppgræðslu á Fljótshlíðarafrétti samkvæmt uppgræðsluáætlun.



Samþykkt samhljóða að veita styrk að fjárhæð kr. 300.000,-

 

2. Tillaga um að fella Auðlindakort inn í breytingar á aðalskipulagi.

Bókun fulltrúa D-lista



Auðlindakort sem hluti vinnu við aðalskipulagsbreytingar:



Við fulltrúar D-lista gerum að tillögu okkar að hafist verið handa við að skilgreina nákvæmlega hvaða breytingar þurfi að gera á gildandi aðalskipulagi í ljósi reynslu undanfarinna ára. 



Áður en lagt er af stað í jafn viðamikla vinnu og endurskoðun Aðalskipulags er, er nauðsynlegt að sveitarstjórn ákveði hvaða atriði hún vill leggja áherslu á.  Þar gæti verið meðal annars verið um að ræða kortlagningu auðlinda, landnýtingu og skipulag búsetu og frístunda.  Nauðsynlegt er að afmarka verkefnið fyrirfram til að vinnan verði markviss og innan skynsamlegra marka. Það má líka benda á að nú þegar hefur verið samþykkt í samræmi við tillögur D-listans, að kortleggja grunnvatnsauðlindina í tengslum við endurskoðun aðalskipulags, en það var gert á fundi sveitarstjórnar þann 7. október 2010.



Birkir A. Tómasson, Elvar Eyvindsson

Meirihluti sveitarstjórnar hefur þegar hafið undirbúningsvinnu samanber minnispunkta frá fundi 9.03.2011 með Gylfa Guðjónssyni, skipulagsarkitekt og í framhaldi af undirbúningsvinnunni verður boðað til vinnufundar með allri sveitarstjórninni þegar endanleg drög að áætlun liggur fyrir.

Bókun fulltrúa D-lista



Umhverfisstefna:



Þessi þáttur tillögunnar er óþarfur. Hvað umhverfisstefnu snertir, þá er í gildi umhverfisstefna sveitarfélagsins sem staðfest var á sveitarstjórnarfundi þann 7. maí 2010. Þarfnist stefnan breytinga er sjálfsagt að umhverfis-og náttúruverndarnefnd fjalli um málið og geri þar að lútandi tillögur til sveitarstjórnar. Af hálfu D-lista er ekki talin ástæða til að sveitarstjórn hafi frumkvæði að málinu á þessu stigi, enda er ekki afmarkað í tillögunni hvaða þættir stefnunnar verði skoðaðir nánar.



Birkir A. Tómasson, Elvar Eyvindsson

Tillagan borin upp og samþykkt með 4 atkvæðum 3 sátu hjá EE,BAT og GÓ.

 

3. 1103006 Tölvubréf frá Gissuri Péturssyni, forstjóra Vinnumálastofnunar varðandi sumarstörf fyrir  námsmenn og atvinnuleitendur sumarið 2011, ásamt tillögu vegna málsins.

Samþykkt samhljóða  að sækja um styrk fyrir tvö störf við grisjun og önnur umhverfismál og tvö störf fyrir upplýsingafulltrúa vegna upplýsingamiðstöðvar og sýningar í tengslum við eldgosin á síðasta ári.

 

4. 1102058 Sveinn Þorgrímsson, bréf dags. 04.02.11, ósk um staðfestingu sveitarstjórnar Rangárþings eystra á landsskiptum að Deild í Fljótshlíð.  Um er að ræða lóð í kringum gamla íbúðarhúsið, lóðin fær landnr. 220060 og er hún 1.187fm að stærð.  Lóðin er tekin úr landnr. 163999.  Lögbýlisréttur fylgir áfram Deild, landnr. 163999.

Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við landsskiptin.

 

5. Tillaga varðandi garðinn við Hjúkrunar- og dvalarheimilið Kirkjuhvol.

Samþykkt samhljóða að gera garðinn meira aðlaðandi sumarið 2011 útfrá hugmyndum starfsfólks og íbúa Kirkjuhvols.

 

6. 1102067 Sýslumaðurinn á Hvolsvelli, bréf dags. 24.02.11, beiðni um umsögn vegna umsóknar ÓG hótel ehf kt 470111-1190 um leyfi fyrir gististað í flokki II, að Hótel Hvolsvelli, Rangárþingi eystra.

Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við leyfisveitinguna.

 

7. 1102045 Sýslumaðurinn á Hvolsvelli, bréf dags. 15.02.11, beiðni um umsögn vegna umsóknar GS veitinga  kt. 540111-2190 um leyfi fyrir veitingastað í flokki III, að Hótel Hvolsvelli, Hlíðarvegi 5, Hvolsvelli.

Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við leyfisveitinguna.

 

8. Tillaga um að bæta aðgengi að Seljalandsfossi.

Um er að ræða uppbyggingu á stíg sunnan megin við fossinn sem gerir svæðið öruggara.

Samþykkt samhljóða.

 

9. Kauptilboð í Stóragerði 1a, Hvolsvelli.

Bókun fulltrúa D-lista.



Við undirritaðir fulltrúar D-lista lýsum yfir efasemdum um að rétt sé að ganga til sölu á eigninni Stóragerði 1, án þess að fullkannað sé hvort hún og þá einkum lóðin, þurfi að vera til taks með tilliti til framtíðaþarfa leikskólans á núverandi stað.



Ef af sölu verður leggjum við mikla áherslu á að tryggt sé að leikskólanum sé afmörkuð nægilega stór lóð áður en til sölu kemur og að í kaupsamningi sé skýrt kveðið á um að kaupandi afsali sér bótarétti vegna ástands hússins og hugsanlegra galla sem í ljós geti komið, en hvorugu þessara atriða er fyrir að fara í kauptilboði því sem nú er borið undir samþykki sveitarstjórnar.



Við teljum því að nauðsynlegt hefði verið að vanda hér betur til verka og skilgreina nánar hvaða hagsmunir gætu verið að vegast á, áður en ákvörðun er tekin um sölu annars verðlítillar eignar.



Elvar Eyvindsson, Birkir A. Tómasson

Lagt fram kauptilboð í Stóragerði 1a, Hvolsvelli að fjárhæð kr. 10 millj.  Sveitarstjóra falið að ganga frá kaupsamningi með fyrirvara um að kaupandi afsali sér öllum bótarétti varðandi hugsanlega galla hússins og að lóð verði afmörkuð með tilliti til þarfa leikskólans.

Kauptilboðið borið upp og samþykkt með 5 atkvæðum. Tveir sitja hjá EE og BAT.

 

10. 1103003 Bréf Rangárbakka ehf og Rangárhallarinnar ehf dags. 28.02.11, beiðni um fjárframlag.

Samþykkt samhljóða að leggja fram hlutafé að fjárhæð kr. 442.350,- sem skiptist á milli Rangárbakka ehf  Kr. 188.976,- og Rangárhallarinnar ehf kr. 253.374,- , en hlutafé verður ekki aukið umfram það.



                



Fundargerðir nefnda sveitarfélagsins.

1. Byggðarráð Rangárþings eystra dags. 24.02.11 Staðfest.


Fundargerðir v/samvinnu sveitarfélaga í Rangárþingi

1. 124. stjórnarfundur Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs. dags . 03.03.11 Staðfest.

2. Fundargerð stjórnar byggingar- og skipulagsfulltrúaembættis Rangárþings bs. dags. 14.02.11, ásamt tölvubréfi Rúnars Guðmundssonar, byggingar- og skipulagsfulltrúa dags. 28.02.11 með tillögum að breyttri skipan í starfssemi embættisins.

Sveitarstjórn Rangárþings eystra leggur til að sameina byggingarnefnd og skipulagsnefnd í eina nefnd og í henni verði 7 fulltrúar. Samþykktir verði endurskoðaðar með tilliti til breyttrar nefndarskipan.

3. 37. fundur í skipulagsnefnd Rangárþings dags. 28.02.11 Liður 198 Gestastofa við Þorvaldseyri. Staðfest.

4. 42. fundur byggingarnefndar Rangárþings dags. 24.02.11 Liðir 547 Valstrýta, Rangárþingi eystra, byggingarleyfi fyrir hesthúsi, 548 Kirkjulækjarkot 3, Rangárþingi eystra – leyfi til að gera upp gamalt geymsluhús og rífa hluta þess, 549 Fljótsbakki, lóð A, Rangárþingi eystra, byggingarleyfi fyrir sumarhúsi, 550 Drangshlíð, Rangárþingi eystra, viðbygging við gistihús, 551 Gljúfurá á Þórsmerkurvegi, Rangárþingi eystra, stöðuleyfi fyrir vinnubúðum.  Framangreindir liðir samþykktir.

 

Fundargerðir v/ samstarfs sveitarfélaga

1. 197. fundur stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands dags. 05.01.11



2. 198. fundur stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands dags. 24.02.11



3. 441. fundur stjórnar SASS dags. 11.02.11



4. 127. stjórnarfundur Skólaskrifstofu Suðurlands dags. 14.02.11



5. 784. fundur stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 25.02.11

 

Erindi til kynningar:

1. Ísafold Travel, bréf dags. 21.02.11,upplýsingasamantekt 15. Fundar um vegstæði upphafs leiðar á Fimmvörðuháls, sem haldinn var í Fossbúð, Skógum 18.02.11



2. Rangárþing ytra, afrit af bréfi til Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs. dags. 12.02.11.



3. Reykjavíkurborg, bréf dags. 21.02.11, vegna breytinga á leikskólagjöldum fyrir börn með lögheimili utan Reykjavíkur.



4. Landsþjónustunefnd AA á Íslandi – LÞN dags. í febrúar 2011.



5. Lánasjóður sveitarfélaga, bréf dags. 23.02.11, auglýsing eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga.



6. Félag leikskólakennara, bréf dags. 22.02.11, ályktun stjórnar félags leikskólakennara vegna niðurskurðar til leikskóla hjá sveitarfélögum landsins.



7. Bréf Arnþórs Helgasonar dags. 23.02.11, varðandi sjóðval.



8. Orkustofnun, bréf dags. 24.02.11, umsókn um jarðhitaleitarstyrk, tilkynning um afgreiðslu.



9. Samband íslenskra sveitarfélaga, skýrsla um fjárframlög til stjórnmálasamtaka.



10. Bréf Silvíu Rossel, mótt. 07.03.11, ábendingar.

 

Ráðstefnur fundir og skýrslur:

1.   Fundarboð Héraðsnefndar Rangárþings að Skógum 11. mars 2011.



2.   Afrit af bréfi til skipulags- og byggingarnefndar frá Gunnhildi Jóhannsdóttur og Halldóri Guðmundssyni dags. 28.02.11 varðandi landnýtingu í landi Miðeyjar.



3.   Samband íslenskra sveitarfélaga, bréf dags. 24.02.11, varðandi XXV. landsþing Sambandsins 25. mars 2011.

 

Heimsókn á fundinn: Kynning frá Einrúm arkitektum á nýrri kirkju-og menningarhúsi.

 

Fleira ekki tekið fyrir, fundargerð upplesin og samþykkt.  Fundi slitið kl. 10:40

Ísólfur Gylfi Pálmason                          

Guðlaug Ósk Svansdóttir

Elvar Eyvindsson                  

Birkir Arnar Tómasson 

Lilja Einarsdóttir                             

Ásta Brynjólfsdóttir

Guðmundur Ólafsson


 


Til baka