12.01.2012 156. fundur sveitarstjórnar Rangárþings eystra
156. fundur sveitarstjórnar Rangárþings eystra haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins, Hlíðarvegi 16, Hvolsvelli, fimmtudaginn 12. janúar 2012 kl. 12:00
Mætt: Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri, Lilja Einarsdóttir, Haukur G. Kristjánsson, Kristín Þórðardóttir, Guðmundur Ólafsson, Elvar Eyvindsson, Ágúst Ingi Ólafsson, skrifstofustjóri og Guðlaug Ósk Svansdóttir, oddviti sem setti fundinn og stjórnaði honum.
Oddviti bauð fundarmenn velkomna um leið og hann leitaði eftir athugasemdum við fundarboðið. Engar athugasemdir komu fram.
Fundargerð ritaði Ágúst Ingi Ólafsson.
Erindi til sveitarstjórnar:
- Tillaga um breytingu á 7. gr. samþykktar um fundarsköp sveitarstjórnar, seinni umræða. Breytingin felur í sér að sveitarstjórnarfundir skulu að jafnaði hefjast kl. 12:00 árdegis (var áður kl. 14:00)
Tillagan samþykkt samhljóða.
- Íbúðalánasjóður, bréf dags. 16.12.11, afgreiðsla á láni að fjárhæð kr. 23.755.101 vegna kaupa á íbúðum að Nýbýlavegar 44. Lánið er til 50 ára með 3.5% vöxtum.
Guðlaug Ósk Svansdóttir vék af fundi. Haukur G. Kristjánsson tók við stjórn fundarins. Samþykkt samhljóða að taka lánið.
Guðlaug Ósk Svansdóttir tók aftur við fundarstjórn.
- Hjálmar Magnússon, bréf dags. 13.12.11, ósk um breytingu á nafni spildu í Kirkjulækjarkoti. Um er að ræða spildu sem seld var úr landi Kirkjulækjarkots 3, 164035 í eigu Hjálmars Magnússonar kt. 191043-2439, síðast liðið sumar og fékk sú spilda sér landnúmer 220241. Óskað er eftir að sú spilda fái nafnið Þveráraurar í stað Kirkjulækjarkots 3.
Sveitarstjórn gerir fyrir sitt leyti ekki athugasemd við nafnbreytinguna.
- Héraðsnefnd Rangæinga dags. 30.12.11 um málefni Skóga, drög að nýju deiliskipulagi fyrir skóla- og safnasvæði í Ytri-Skógum. Héraðsnefnd hefur samþykkt drögin fyrir sitt leyti og vísar þeim til umfjöllunar í Héraðsnefnd Vestur-Skaftafellssýslu og til sveitarstjórnar Rangárþings eystra, sem fer með skipulagsvald á svæðinu.
Sveitarstjórn samþykkir að deiliskipulaginu verði lokið sem fyrst og auglýst.
- Valdimar Gunnar Baldursson, bréf dags. 14.12.11, varðandi styrk til námsmanna.
Erindinu hafnað.
- Trúnaðarmál.
- Kvennakórinn Ljósbrá, beiðni um að fá endurgjaldslausa æfingaaðstöðu í Hvoli, þriðjudagskvöld frá 19:30 til 22:30 frá 10. janúar fram að vortónleikum í byrjun maí.
Samþykkt samhljóða.
- Sóknarnefnd Stórólfshvolskirkju vill kanna með hvaða hætti sveitarfélagið gæti komið að byggingu nýrrar kirkju, svo og samnýtingu húsnæðis og starfsmanns. Lagðar fram hugmyndir sóknarnefndar að samstarfi sóknarnefndar og sveitarfélagsins.
Haukur G. Kristjánsson vakti athygli á hugsanlegu vanhæfi sínu til þess að fjalla um þetta mál. Sveitarstjórn tekur vel í hugmyndirnar og er Ísólfi Gylfa, sveitarstjóra falið að vinna að frekri undirbúningi ákvarðanatöku um málið.
- Skipulagsfulltrúi: Heimsókn Sigurgeirs Skúlasonar, fulltrúa biskupsstofu og skipulagsfulltrúa Rúnar Guðmundssonar, vegna landsskipta Torfastaða.
Rúnar Guðmundsson, byggingar- og skipulagsfulltrúi mætti á fundinn og skýrði þennan lið.
Sveitarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti landskipti á 3 spildum u.þ.b. samtals 7 hektarar út úr Torfastöðum I og III þ.e. 2,41 ha úr T-3, 0,82 ha úr T-3, og 3,34 ha úr T-1 og samþykki landskipti á 6 spildum u.þ.b. samtals 7 hektarar að stærð út úr Torfastöðum 4 og 5, þ.e. 0,09 ha úr T-5, 1,71 ha úr T-4, 1,0 ha úr T-5 0,55 ha úr T-5, 1,65 ha úr T-4 og 2,0 ha úr T-5sbr. uppdrætti unnir af Sigurgeiri Skúlasyni.
- Frumvarp að þriggja ára áætlun Rangárþings eystra 2013 – 2015 lagt fram til fyrri umræðu.
Bókun fulltrúa D-lista EE og KÞ
Við erum sammála flestum þeim tillögum um fjárfestingar sem hér eru á borð bornar til næstu þriggja ára. Hins vegar mælumst við til þess, að hugmyndir um undirbúning og hönnun ráðhúss verði settar á ís þar til séð verður fram úr þeim fjárskuldbindingum sem fyrirhugaðar framkvæmdir við íþróttamiðstöð kalla óneitanlega á. Við bendum í ofanálag á að ef farið yrði að tillögum okkar um áfangaskiptingu framkvæmda við íþróttamiðstöð myndi slíkt auka svigrúm sveitarfélagsins til annarra atvinnuskapandi framkvæmda á næstu árum.
Að lokum fögnum við sérstaklega áformum um fjárveitingar til svokallaðs Hamfaraseturs á árunum 2013 og 2014.
Þriggja ára áætlun vísað til síðari umræðu.
- Tilboð í leigu á Fossbúð:
1. Hallgerður ehf., leiga á Fossbúð, bréf móttekið 30.12.11
2. Sigríður Pétursdóttir, leiga á Fossbúð, bréf dags. 28.12.11
3. Elías Rúnar Kristjánsson og Arnar Freyr Ólafsson, leiga á Fossbúð, bréf dags.28.12.11
4. Jón Guðmundsson og Oddný Björg Hólmbergsdóttir, leiga á Fossbúð, bréf móttekið 30.12.11
Samþykkt að fela byggðarráði að ræða við tilboðsgjafa og taka ákvörðun um leigu hússins.
Fundargerðir nefnda sveitarfélagsins og samstarfs sveitarfélaga í Rangárvalla- og Vestur- Skaftafellssýslu:
- 50. fundur í Byggingarnefnd Rangárþings bs. 15.12.11
Eftirtaldir liðir fundargerðarinnar tilheyra Rangárþingi eystra:
664-2011 Nýibær, Rangárþingi eystra – leyfi til að rífa hús og mastur.
Míla ehf. kt. 460207-1690, Stórhöfða 22-30, 110 Reykjavík, sækir um leyfi til að rífa fjarskiptamastur og tækjahús í landi Nýjabæjar í Rangárþingi eystra, lnr. 163787, samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Samþykkt. Fyrir liggur samningur landeiganda og Mílu um lok leigutíma masturs og tækjahúss.
665-2011 Staðarbakki, Rangárþingi eystra – byggingarleyfi fyrir sólstofu.
Kristinn Jónsson, kt. 020460-3939, Staðarbakka, 861 Hvolsvelli, sækir um byggingarleyfi fyrir sólstofu við íbúðarhús sitt að Staðarbakka í Rangárþingi eystra, lnr. 164063, samkvæmt meðfylgjandi teikningum.
Samþykkt.
666-2011 Staðarbakki, Rangárþingi eystra – byggingarleyfi fyrir vélageymslu.
Kristinn Jónsson, kt. 020460-3939, Staðarbakka 861 Hvolsvelli, sækir um byggingarleyfi fyrir vélageymslu að Staðarbakka í Rangárþingi eystra, lnr. 164063, samkvæmt meðfylgjandi teikningum. Um er að ræða breytingu á áður samþykktri teikningu.
Samþykkt.
667-2011 Lækjarbakki, Rangárþingi eystra – byggingarleyfi fyrir skemmu
Páll Helgi Guðmundsson, kt.150947-3409, Þrastarási 51, 270 Mosfellsbæ, óskar eftir að fá að rífa gamalt fjós á Lækjarbakka, lnr. 163958 í Rangárþingi eystra, samkvæmt meðfylgjandi teikningum.
Samþykkt.
667-2011 a. Lækjarbakki, Rangárþingi eystra – byggingarleyfi fyrir skemmu
Páll Helgi Guðmundsson, kt.150947-3409 Þrastarási 51, 270 Mosfellsbæ, óskar eftir að fá að byggja skemmu, sem verður á sama stað og fjós sem á að rífa, á Lækjarbakka, lnr. 163958 í Rangárþingi eystra, samkvæmt meðfylgjandi teikningum.
Samþykkt.
668-2011 Ytri Skógar, Rangárþingi eystra – byggingarleyfi fyrir gistirými.
Jóhann Frímannsson, kt.140952-3709 og Eyja Þóra Einarsdóttir, kt. 270155-3839, Moldnúpi, 861 Hvolsvelli, sækja um byggingarleyfi fyrir gistirými, sem byggt verður við farfuglaheimilið að Ytri Skógum, lnr. 163731, í Rangárþingi eystra, samkvæmt meðfylgjandi teikningum.
Byggingarnefnd vísar málinu til afgreiðslu sveitarstjórnar Rangárþings eystra.
Sveitarstjórn frestar ákvörðun um málið þar sem um er að ræða byggingu sem nær inn
náttúruverndarsvæði Skógafoss. Samþykkt að fela byggingar- og skipulagsfulltrúa að afla nauðsynlegra gagna umsagnaraðila áður en ákvörðun er tekin.
669-2011 Grenstangi, Rangárþingi eystra – byggingarleyfi fyrir sumarhúsi.
Bryndís Sunna Valdimarsdóttir, kt. 290669-5889, Víðimel 74, 107 Reykjavík, sækir um byggingarleyfi fyrir sumarhúsi að Grenstanga, lóð G-3, lnr. 218730 í Rangárþingi eystra, samkvæmt meðfylgjandi teikningum. Um er að ræða breytingu á áður samþykktum teikningum.
Samþykkt.
Liður 668-2011 afgreiddur eins og fram kemur í fundargerðinni. Aðrir liðir fundargerðarinnar staðfestir.
- 29. fundur stjórnar Brunavarna Rangárvallasýslu bs. 20.12.11 Staðfest.
- 136.fundur stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.. 22.12.11 Staðfest.
- 7. fundur Héraðsnefndar Rangæinga 11.10.11 Staðfest.
- 16. fundur félagsmálanefndar Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu 14.12.11
- 114. fundur barnaverndarnefndar Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu 14.12.11
- 1. Verkfundur um sorphirðumál frá 6. janúar 2012.
- Fundur í stjórn byggingar- og skipulagsfulltrúaembættis Rangárþings bs. 19.12.11
Fundargerðir vegna samstarfs sveitarfélaga á Suðurlandi:
- 452. fundur stjórnar SASS 09.12.11
- 137. fundur Heilbrigðisnefndar Suðurlands 09.12.11
- 210. stjórnarfundur Sorpstöðvar Suðurlands 27.12.11
- 14. fundur ART teymis 17.05.11
- 15. fundur ART teymis 12.12.11
Erindi til kynningar:
- Ungmennafélag Íslands, bréf dags. 03.01.12, gisting íþróttahópa.
- Héraðsnefnd Vestur-Skaftafellssýslu, fundargerð 03.11.11
- Byggingar- og skipulagsfulltrúaembætti Rangárþings bs,. Ársreikningur 2010, ásamt fundargerð 6. desember 2011 og gögnum til upplýsinga.
- Iðnaðarráðuneyti, bréf dags. 03.01.12, afrit af bréfi til Orkuveitu Reykjavíkur.
- Orkuveita Reykjavíkur, bréf dags. 29.12.11, gjaldskrárhækkanir fyrir heitt vatn í Rangárþingi eystra.
- Landmælingar Íslands, bréf dags. 14.12.11, innleiðing á nýjum lögum nr. 44/2011 um „Grunngerð fyrir stafrænar landupplýsingar“
- Vinnueftirlitið, bréf dags. 20.12.11, ítrekun fyrirmæla Vinnueftirlitsins.
- Fornleifavernd Suðurlands, bréf dags. 21.12.11, Bjarkarey í Rangárþingi eystra.
- Landgræðsla ríkisins, bréf dags. 21.12.11, Aðalskipulag Rangárþings eystra.
- Landgræðsla ríkisins, bréf dags. 15.11.11, framlag til landþurrkunar.
- Verkefnastjórn Hjólreiða á Íslandi, fundargerð ódags.
- Hjólreiðahópur Iceland Mobility Network, fundargerð 31.10.11
- Bréf til Byggingar- og skipulagsfulltrúa vegna Ystabælistorfu 1(landnr. 209022), 2 ( landnr. 209018 og 3 (landnr. 209019)- aðalskipulagsbreyting.
- Ljósrit af bréfi sveitarstjóra Rangárþings eystra til Jóhannesar Þórðarsonar dags. 17.08.10 vegna Ystabælistorfu 2.
- Ljósrit af bréfi sveitarstjóra Rangárþings eystra til Gláma Kím dags. 21.07.10, vegna frístundabyggðar á Ystabælistorfu 1,2, og 3.
- Deiliskipulag Ystabælistorfu 1,2 og 3, Rangárþingi eystra.
- Afrit af bréfi Björns Bjarnasonar til Innanríkisráðuneytisins dags. 05.01.12 vegna stjórnsýslukæru.
Ráðstefnur og fundir:
- Fundarboð og dagskrá aukaaðalfundar Sorpstöðvar Suðurlands bs. 17. janúar 2012.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16:04
Guðlaug Ósk Svansdóttir
Ísólfur Gylfi Pálmason
Haukur G. Kristjánsson
Lilja Einarsdóttir
Kristín Þórðardóttir
Elvar Eyvindsson
Guðmundur Ólafsson
Til baka