155. fundur sveitarstjórnar Rangárþings eystra haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins, Hlíðarvegi 16, Hvolsvelli, föstudaginn 16. desember 2011 kl. 16:00
Mætt: Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri, Lilja Einarsdóttir, Haukur G. Kristjánsson, Kristín Þórðardóttir, Guðmundur Ólafsson, Elvar Eyvindsson, Ágúst Ingi Ólafsson, skrifstofustjóri og Guðlaug Ósk Svansdóttir, oddviti sem setti fundinn og stjórnaði honum.Oddviti bauð fundarmenn velkomna um leið og hann leitaði eftir athugasemdum við fundarboðið. Engar athugasemdir komu fram.
Fundargerð ritaði Ágúst Ingi Ólafsson.
Dagskrá:
Erindi til sveitarstjórnar:
Atgeir ehf: Sigurður Hróarsson fer yfir starfsemi og samning um Sögusetur.
Fram kom í máli Sigurðar að reksturinn er ekki í samræmi við væntingar þegar samningurinn var gerður og ekki sé hægt að reka Sögusetrið áfram á grundvelli hans.Héraðssambandið Skarphéðinn: Styrkumsókn.
Samþykkt að greiða 70kr. á íbúa á árinu 2011 og 80kr. á íbúa fyrir árið 2012.
Skeiðvangur ehf: Styrkumsókn.
Samþykkt samhljóða að veita rekstrarstyrk kr. 177.000,-Skógræktarfélag Rangæinga: Styrkumsókn.
Samþykkt samhljóða að veita styrk kr. 300.000,-Vatnaskil: Straummælingar í Markarfljóti, beiðni um þátttöku í kostnaði.
Samþykkt samhljóða að taka þátt í kostnaði að fjárhæð kr. 400.000,- enda munu niðurstöður mælinganna nýtast sveitarfélaginu við endurskoðun aðalskipulags.
Trúnaðarmál.
Útsvar
Útsvarshlutfall 14,48%
Fasteignagjöld
Fasteignaskattur, íbúðir og útihús, A-stofn 0,36% af fasteignamati
Fasteignaskattur, atvinnuhúsnæði, B-stofn 1,32% af fasteignamati
Fasteignaskattur, opinbert húsnæði 1,32% af fasteignamati
Lóðarleiga 1,00% af fasteignamati lóðar
Holræsagjald 0,25% af fasteignamati
Vatnsgjald er skv. sérstakri gjaldskrá 0,23% af fasteignamatiÁlagningarreglurnar samþykktar samhljóða.
Gjaldskrár fyrir árið 2012, lagðar fram
Gjaldskrá sorphirðu- og sorpeyðingar í Rangárþingi eystra. Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá Leikskólans Arkar. Samþykkt með 6 atkvæðum 1 sat hjá GÓ.
Samþykkt bókun vegna gjaldskrár Leikskólans. Frá og með 1. Ágúst 2012 verður innheimt sérstaklega fyrir notkun á svokölluðu náðarkorteri sem skilgreint er 15 mín. fyrir og eftir umsaminn vistunartíma.
Gjaldskrá Sundlaugarinnar á Hvolsvelli. Samþykkt samhljóða.
Reglur og gjaldskrá fyrir Skólaskjól Hvolsskóla. Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá félagsheimila í Rangárþingi eystra. Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá Skógaveitu. Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá Vatnsveitu Rangárþings eystra. Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá og reglur fyrir mötuneyti Hvolsskóla. Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá fyrir fjallaskála. Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá fyrir hundahald á Hvolsvelli. Samþykkt samhljóða.
Gjaldskrá fyrir kattahald í þéttbýli Rangárþings eystra. Samþykkt samhljóða.
Breytingartillaga D-lista á fjárfestingaáætlun fyrir árið 2012
Æskulýðs og íþróttamál
Íþróttamannvirki 83.000.000,-
Breytingatillaganfelld með 4 atkvæðum gegn 3 atkvæðum EE, KÞ og GÓ.
Umferðar og samgöngumál
Gatnagerð Hvolsvelli 10.000.000,-
Göngu- og hjólreiðabrautir 2.000.000,-
Þessi tillaga er óbreytt frá fyrri tillögu meirihluta.
Umhverfismál
Leiktæki, opin svæði 2.000.000,-
Ferðamannastaðir aðgengi 5.000.000,-
Hamragarðar ofl. 1.500.000,-
Tillagan felld með 4 atkvæðum gegn 2 atkvæðum, einn situr hjá GÓ.
Sameiginlegur kostnaður
Lyfta á skrifstofu sveitarfélagsins 6.000.000,-
Þessi tilllaga er óbreytt frá fyrri tillögu meirihluta.
Þjónustumiðstöð
Tækjakaup 2.000.000,-
Þessi tillaga er óbreytt frá fyrri tillögu meirihluta
Leiguíbúðir
Endurbætur 5.000.000,-
Þessi tilllaga er óbreytt frá fyrri tillögu meirihluta
Vatnsveita 1.500.000,-
Þessi tillaga er óbreytt frá fyrri tillögu meirihluta
Atvinnumál
Hamfarasetur 5.000.000,-
Tillagan felld með 4 atkvæðum gegn 3 EE, KÞ og GÓ
Hitastigulshola 2.000.000,-
Tillagan samþykkt samhljóða.
Bókun meirihluta sveitarstjórnar
Samtals 125.000.000,-
Greinargerð:
Við höfum það sem útgangspunkt í þessari tillögu, að skuldir sveitarfélagsins verði ekki enn auknar. Því gerir áætlun þessi ráð fyrir framkvæmdum sem sveitarfélagið getur ráðist í án þess að taka ný lán.Varðandi framkvæmdir við íþróttahús viljum við fara okkur hægar en fyrirliggjandi áætlanir gera ráð fyrir og skipta verkinu upp í fleiri og smærri áfanga. Þar með eru og auknar líkur á að heimamenn geti tekið þátt í þeim framkvæmdum.Við teljum skorta á að hugað sé að atvinnumálum miðað við fyrirliggjandi tillögu að fjárfestingaáætlun og því leggjum við til, að í stað þess að ráðist verði í hönnun ráðhúss nú, verði því frestað ótiltekið, enda ljóst að í það verkefni er ekki forsvaranlegt að ráðast á næstu árum miðað við þær framkvæmdir sem nú eru ráðgerðar. Því er það sóun á almannafé að fara nú að hanna hús sem næsta líklegt er að verði ekki byggt á næstu tveimur árum þar sem slíkar teikningar virðast, líkt og dæmin sanna, vera fljótar að úreldast.Þess í stað leggjum við til, að þeim 5 milljónum sem áætlaðar voru til hönnunar ráðhúss verði varið í að koma á laggirnar svokölluðu Hamfarasetri og nýta þannig þá athygli sem að okkur hefur beinst í kjölfar nýorðinna náttúruhamfara.Við leggjum og til að framlag til leiktækja, opinna svæða verði lækkað um 1.000.000 og í staðinn verði framlag til viðhalds Hamragarða hækkað í kr. 1.500.000,- í stað 500.000,- Ljóst er að ráðast þarf í mikilvægar viðhaldsaðgerðir til að varna frekara tjóni á húsunum þar. Þarf vart að útskýra þau verðmæti sem Hamragarðabærinn er.Enn fremur viljum við gera ráð fyrir fjárfestingu upp á kr. 2.000.000,- vegna jarðhitaleitar, í samræmi við tillögu okkar fyrr á árinu.EE, KÞ
Helstu niðurstöður fjárhagsáætlunar fyrir árið 2012 eru;
Áætlaðar heildartekjur Rangárþings eystra (aðalsjóðs, A- og B- hluta) nema alls 1.103 mkr. Heildarútgjöld án fjármagnsliða eru áætluð 1.060 mkr. og þar af reiknaðar afskriftir 70,1 mkr. Veltufé frá rekstri 101 mkr. Niðurstaða fjármagnsliða er áætluð 43,2 mkr. Rekstrarniðurstaða er jákvæð um 452 þúsund.
Í eignfærða fjárfestingu verður varið 227,0 mkr.
Afborgun lána 50,2 mkr.
Tekin ný langtímalán 100,0 mkr.
Skuldir og skuldbindingar eru áætlaðar í árslok 847,5 mkr.
Eigið fé er áætlað í árslok 1.443,0 mkr.
Fjárhagsáætlun 2012 borin undir atkvæði og samþykkt með 4 atkvæðum. Þrír sitja hjá EE, KÞ og GÓ.
Bókun D-lista
D-listi Sjálfstæðismanna áréttar þá skoðun sína frá fyrra ári að erfitt sé að réttlæta aukningu skulda. Við bendum á að við árslok 2012, miðað við fyrirliggjandi fjárhagsáætlun, munu raunskuldir sveitarfélagsins hafa hækkað um 165 milljónir frá árslokum 2010 og hefur tekjuhliðin engan veginn haldið í við þessa hækkun, en tekjur hækka á sama tímabili einungis um 11 milljónir. Skuldaaukning af þessari stærðargráðu veldur nærri 8.000 króna greiðslubyrði á hvern íbúa sveitarfélagsins, sem gerir 45.000 krónur á hverja fimm manna fjölskyldu á ári.
Við höfum lagst gegn íbúðakaupum sem átt hafa sér stað á liðnu ári og haft efasemdir um að farið verði í framkvæmdir við íþróttahúsið. Vegna atvinnuástandsins þykir okkur þó rétt að samþykkja fyrirhugaðar framkvæmdir með þeim fyrirvara að það verði þannig staðið að þeim að heimamenn geti raunverulega tekið þátt í þeim framkvæmdum. Það þýðir væntanlega að áfangaskipta verður verkinu og taka minni skref í einu.
Jafnframt bendum við á að það eru ódýrari kostir í boði eins og tillögur og teikningar, sem unnar voru veturinn 2009-10 sýna. Samkvæmt þeim er einnig auðveldara að áfangaskipta verkinu. Furðu vekur að ekki skuli hafa verið unnið meira með þær tillögur.
Atvinnumál hafa ekki verið ofarlega á baugi hjá núverandi meirihluta. Við höfum á þessu ári lagt til að stofnaður verði Nýsköpunarsjóður, til að ýta undir framtak og hjálpa fólki að koma góðum hugmyndum áfram og þróa, þessu var hafnað. Við höfum þrýst á um skipun Atvinnu- og ferðamálanefndar, en hún var lögð niður og atvinnumálefni færð til sveitarstjórnar. Þessi ákvörðun veldur því að okkar mati að atvinnumál eru lítt eða ekki til umræðu, hvað þá að sveitarstjórn gefi sér tíma til að líta yfir sviðið, huga að nýjungum eða ræða við fólk sem kann að búa yfir hugmyndum varðandi atvinnumál. Einstaka framkvæmdir duga skammt ef horft er til framtíðar, en gera vissulega gagn til skamms tíma litið.
Við teljum samkvæmt framansögðu að endurskoða þurfi forgangsröðun í fjárfestingum og að í kreppuástandi geti bygging stjórnsýsluhúss ekki verið framarlega í röðinni. Það er mat okkar að meta beri mikilvægi fjárfestinga t.a.m. með tilliti til verðmætasköpunar fyrir íbúa, raunverulegrar getu sveitarfélagsins og þarfa. Því höfum við lagt til að allar áætlanir um hönnun og skipulag ráðhúss verði lagðar til hliðar, og í stað þess verði því fjármagni varið til stofnunar Hamfaraseturs og nýta þannig áfram þann slagkraft og það forskot sem eldgosin gáfu og þá athygli sem að okkur mun beinast á næstu árum.
Einnig lögðum við til að gert verði ráð fyrir fjárfestingu upp á 2.000.000,- í jarðhitaleit, vegna borunar hitastigulsholu að undangengnum athugunum Hauks Jóhannessonar jarðfræðings. Er þetta í samræmi við tillögu okkar á árinu í þeim efnum.
Varðandi tekjuöflun sveitarfélagsins þá setur Jöfnunarsjóður verulegar skorður og erum við sammála meirihlutanum hvað varðar tillögur um álagningarprósentur. Við höfum á milli funda bent á mikla hækkun á fasteignamati og hefur það skilað lækkun álagningarprósentunnar nú við síðari umræðu. Við treystum okkur ekki heldur til að leggja til lækkanir á þjónustugjöldum að þessu sinni, en þau hækka um sem nemur vísitöluhækkun. Benda má á að þjónustugjöld standa hvergi nærri undir raunverulegum útgjöldum við viðkomandi málaflokka.
EE,KÞ
Sveitarstjórn heldur reglulega fundi einu sinni í mánuði, annan fimmtudag hvers mánaðar. Sveitarstjórnarfundir skulu að jafnaði hefjast kl. 12.00 árdegis ( var áður kl 14.00 ).
Fundargerðir nefnda sveitarfélagins:
Fundargerðir nefnda sveitarfélagsins og samstarfs sveitarfélaga í Rangárvalla- og Vestur- Skaftafellssýslu:
Erindi til kynningar:
Fleira ekki gert og fundi slitið kl.