03.06.2009 17:00

24. fundar í Byggingarnefnd Rangárþings bs.,

24. fundar í Byggingarnefnd Rangárþings bs., miðvikudaginn 3. júní 2009, að Ormsvelli 1 Hvolsvelli.

Mættir á fundinn sem var settur kl.17.00: Sigurbjartur Pálsson, Ólafur Júlíusson, varamaður fyrir Sigfús Davíðsson, Guðjón Sigurðsson, Eiríkur Davíðsson varamaður fyrir Ágúst Kristjánsson, Guðfinnur Guðmannsson, Pálína Björk Jónsdóttir, Björn Guðjónsson, Rúnar Guðmundsson bfltr. og Árni Þorgilsson, sem ritaði fundargerð.


Ásahreppur:

243-2009 Jökulheimar, Ásahreppi - byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við skálann.
Magnús Tumi Guðmundsson sækir um fh. Jöklarannsóknafélags Íslands,
kt. 670169-3839, Vættaborgum 134, 112 Reykjavík, leyfi til að byggja við skála þeirra í Jökulheimum, Ásahreppi, samkvæmt meðfylgjandi teikningum.
Samþykkt.

244-2009 Syðri-Hamrar 2, Ásahreppi - viðbygging við íbúðarhús.

Jón Þorsteinsson, kt. 090646-2659, Syðri-Hömrum 2, Ásahreppi, sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við íbúðarhús sitt að Syðri-Hömrum 2, samkvæmt meðfylgjandi teikningum.
Samþykkt.


Rangárþing eystra:

245-2009 Öldubakki 4, Hvolsvelli - leyfi fyrir skilti.
Heilbrigðisstofnun Suðurlands, kt. 670804-2750, Árvegi, Selfossi, sækir um leyfi til að setja upp skilti við Heilsugæslustöðina á Hvolsvelli, samkvæmt meðfylgjandi teikningum.
Samþykkt.

246-2009 Félagsheimilið Hvoll, Hvolsvelli - leyfi til að endurbyggja handrið.
Rangárþing eystra, kt. 470602-2440, Hlíðarvegi 16, Hvolsvelli, sækir um leyfi til endurbyggja handrið á Félagsheimilinu Hvoli, samkvæmt meðfylgjandi teikningum.
Samþykkt.

247-2009 Hallgeirsey, Rangárþingi eystra - leyfi fyrir girðingu.
Eignarhaldsfélagið Farice ehf. kt. 511203-2950, Smáratorgi 3, 201 Kópavogur, sækir um leyfi til að setja upp girðingu í kringum landtökuhús í landi Hallgeirseyjar í Rangárþingi eystra, samkvæmt meðfylgjandi teikningum.
Samþykkt.

248-2009 Hallskot, lóð 27, Rangárþingi eystra - byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við sumarhús.
Einar Gíslason, kt. 290446-3259, Hjallabraut 88, 220 Hafnarfirði, sækir um leyfi til að byggja við sumarhús sitt Hallskoti, lóð 27, landnr. 164121, Rangárþingi eystra, samkvæmt meðfylgjandi teikningum.
Samþykkt.

249-2009 Strönd 2, Rangárþingi eystra - byggingarleyfi fyrir sumarhúsi með geymslu.
Kjartan Már Benediktsson, kt. 250955-2789, Norðurgarði 17, Hvolsvelli, sækir um leyfi til að byggja sumarhús með geymslu á landi sínu úr jörðinni Strönd 2, landnr. 193155, samkvæmt meðfylgjandi teikningum.
Samþykkt með fyrirvara um samþykkt deiliskipulag.

250-2009 Forsæti, Rangárþingi eystra – stöðuleyfi fyrir vinnubúðir
Þorgeir Björgvinsson kt. 190364-3059, fh. Forsætisbýlið, Þrándarseli 1, 109 Reykjavík, kt. 440505, sækir um stöðuleyfi fyrir vinnubúðum að Forsæti í Rangárþingi eystra lnr. 163941, samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Samþykkt að veita stöðuleyfi til eins árs.


Rangárþing ytra:

251-2009 Rangárbakki 7, Hellu - óskað eftir stöðuleyfi.
Raffoss ehf. kt. 430293-2579, Rangárbakka 7, Hellu, óskar eftir stöðuleyfi fyrir geymsluhúsi úr blikki á lóðinni Rangárbakki 7 á Hellu, samkvæmt meðfylgjandi teikningum.
Samþykkt að veita stöðuleyfi til eins árs.

252-2009 Ægissíða 1, Rangárþingi ytra - byggingarleyfi fyrir sumarhúsi.

Torfi Sigurðsson, kt. 110763-7949, Kjarrhólum 34, 800 Selfossi, óskar eftir byggingarleyfi fyrir sumarhúsi á lóð sinni úr landi Ægissíðu 1, landnr. 165450, samkvæmt meðfylgjandi teikningum.
Samþykkt.

253-2009 Landmannalaugar, Rangárþingi ytra - óskað eftir stöðuleyfi.
Slysavarnafélagið Landsbjörg, kt. 560499-2139, Skógarhlíð 14, 105 Reykjavík, sækir um stöðuleyfi fyrir gámi/smáhýsi við skálann í Landmannalaugum, sem aðstöðu fyrir björgunarsveitir sem staðsettar verða á hálendinu í sumar.
Samþykkt að veita stöðuleyfi til eins árs.

254-2009 Svínhagi, lóð H-9, Rangárþingi ytra - stöðuleyfi fyrir vinnuskúr.
Ólafur Valsson, kt. 101069-4869, Skálaheiði 5, 200 Kópavogi, sækir um stöðuleyfi fyrir vinnuskúr á lóð H-9 í landi Svínhaga, samkvæmt meðfylgjandi teikningum.
Samþykkt að veita stöðuleyfi til eins árs.

255-2009 Dynskála 5, Hellu - byggingarleyfi fyrir viðbyggingu.
Garðar Sigurðsson, kt. 240958-2879, Dynskálum 5, Hellu, sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við hús sitt að Dynskálum 5 á Hellu, samkvæmt meðfylgjandi teikningum.
Samþykkt.

256-2009 Hallstún, Rangárþingi ytra - stöðuleyfi fyrir bjálkahús.
Stella Björk Georgsdóttir, kt. 080537-3799, Fossvegi 4, Selfossi, sækir um stöðuleyfi fyrir 23 fm. bjálkahúsi á landi sínu Hallstúni, landnr. 165088, samkvæmt meðfylgjandi teikningum.
Samþykkt.

257-2009 Ketilhúshagi nr. 31, Rangárþingi ytra - byggingarleyfi fyrir gestahúsi.
Aðalheiður Guðmundsdóttir, kt. 110542-2839, Holtsgötu 21, 101 Reykjavík, sækir um byggingarleyfi fyrir gestahúsi á lóðinni Ketilhúshagi lóð nr. 31 í Rangárþingi ytra, samkvæmt meðfylgjandi teikningum.
Samþykkt.

258-2009 Ægissíða 1, Rangárþingi ytra - stöðuleyfi fyrir gámahúsum.
Ægir Sævarsson, kt. 211077-5309, Auðkúlu, 851 Hellu, sækir um stöðuleyfi fyrir gámahúsum á lóð sinni að Ægissíðu 1, landnr. 199935, samkvæmt meðfylgjandi myndum.
Hafnað.

259-2009 Holtsmúli 2, Rangárþingi ytra - byggingarleyfi fyrir frístundahúsi.
Brynja Viðarsdóttir, kt. 291064-7369, Lækjarvaði 1, 110 Reykjavík, sækir um byggingarleyfi fyrir frístundahúsi að Holtsmúla 2, Rangárþingi ytra, samkvæmt meðfylgjandi teikningum.
Samþykkt með fyrirvara um samþykkt deiliskipulag.

260-2009 Galtalækur, Rangárþingi ytra - byggingarleyfi fyrir frístundahúsi.
Sigurjón Sveinsson, kt. 121175-4669, Fannahvarfi 4, 203 Kópavogi, sækir um byggingarleyfi fyrir frístundahúsi á lóð C í landi Galtalækjar 2, landnr. 209855, samkvæmt meðfylgjandi teikningum.
Samþykkt, með fyrirvara um samþykki skipulagsstofnunar.

261-2009 Fögruvellir, Rangárþingi ytra – stöðuleyfi fyrir gámahúsum
Ólöf Rún Tryggvadóttir, kt. 120966-3089, Þingási 61, 110 Reykjavík, óskar eftir stöðuleyfi fyrir tveimur gámahúsum á Fögruvöllum, landnr. 200046 úr landi Stóru-Valla í Rangárþingi ytra, samkvæmt meðfylgjandi erindi.
Samþykkt að veita stöðuleyfi til eins árs.



Sigurbjartur Pálsson

Ólafur E. Júlíusson

Guðjón Sigurðsson

Eiríkur Davíðsson

Guðfinnur Guðmannsson

Björn Guðjónsson

Pálína Björk Jónsdóttir 

Rúnar Guðmundsson



Til baka