
Stjórnsýsla
Ábyrg fjármálastjórn
Stjórnendur Rangárþings eystra munu ávallt gæta þess að vel sé farið með skattfé íbúanna, hagkvæmni gætt og skattheimtu stillt í hóf. Ávallt verði vandað til fjárhagsáætlanagerðar, framkvæmdar hennar og eftirlits með framkvæmdum. Rekstraryfirlit skal á þriggja mánaða fresti lagt fyrir byggðaráð.
Útboð verkefna
Sveitarstjórn Rangárþings eystra mun leita leiða við að bjóða út fleiri þætti í starfsemi sveitarfélagsins þar sem slíkt þykir hagkvæmt.
Leiðarljós Rangárþings eystra í innkaupamálum er að gætt sé hagkvæmni í faglegum innkaupum á vöru, þjónustu og framkvæmdum og að öll innkaup séu í samræmi við gildandi lög, reglugerðir og sérstakar samþykktir Rangárþings eystra.
Rangárþings eystra er eitt öflugasta landbúnaðarhérað landsins. Sveitarstjórn Rangárþings eystra leggur áherslu á að sveitarfélagið sé til fyrirmyndar hvað varðar umhverfsmál, umferðaröryggi og snyrtimennsku. Af þeim sökum er mikilvægt að móta reglur um búfjárhald í sveitarfélaginu þ.m.t. um lausagöngu búfjár.
Ný lögreglusamþykkt Rangárvallasýslu
Sveitarstjórn Rangárþings eystra leggur áherslu á skýrar reglur varðandi samskipti við lögreglu og mun taka þátt í því að móta nýja lögreglusamþykkt fyrir Rangárvallasýslu.