Samgöngumál


Uppbygging safn- og tengivega
Sveitarstjórn Rangárþings eystra leggur áherslu á að efla og bæta samgöngur í sveitarfélaginu enda eru góðar samgöngur undirstaða öflugs atvinnulífs. Verkefnum þarf að forgangsraða og er það mat sveitarstjórnar að vegabætur á malarvegum í dreifbýlinu þar sem ung skóla- og leikskólabörn ferðast daglega, séu þar fyrst á dagskrá. Því er það forgangsverkefni að sækja aukið fjármagn til uppbygginar safn- og tengivega í sveitarfélaginu.

Suðurlandsvegur

Sveitarstjórn Rangárþings eystra leggur áherslu á að efla og bæta samgöngur til og frá sveitarfélaginu enda eru góðar samgöngur undirstaða öflugs atvinnulífs. Mikilvægasta verkefnið á því sviði er að tvöfalda Suðurlandsveg. Sveitarstjórn Rangárþings eystra mun leggja sitt af mörkum til að undirstrika samhug Sunnlendinga varðandi þetta forgangsverkefni.

 

Bakkafjara

Sveitarstjórn Rangárþings eystra tekur þátt í undirbúningi og rannsóknum á því verkefni að koma á fót höfn í Bakkafjöru í samvinnu við stýrihóp samgönguráðherra um verkefnið, Vestmannaeyjabæ o.fl. Sveitarstjórn mun leggja sitt af mörkum til þess að undirbúningur að ákvarðanatöku gangi hratt og örugglega fyrir sig.


Reiðvegagerð

Sveitarstjórn Rangárþings eystra leggur áherslu á öryggi ökumanna og hestamanna er leið eiga um sveitarfélagið. Því er mikilvægt að halda áfram uppbyggingu reiðvega í samstarfi við Vegagerð ríkisins. Rangárþing eystra styður verkefnið Reiðleiðir í Rangárþingi en það er verkefni sem snýr að því að kortleggja allar samþykktar reiðleiðir og þjónustu við hestamenn í Rangárvallasýslu.