
Á leikskólanum Örk er unnið gott og metnaðarfullt starf. Sveitarstjórn Rangárþings eystra leggur áherslu á að halda því starfi áfram, auka menntun starfsmanna, bæta núverandi húsnæði og lóð leikskólans, huga að framtíðarstaðsetningu nýs leikskóla og hefja bygginu hans á síðari hluta kjörtímabilsins. Mikilvægt er að móta hugmyndafræðilega stefnu leikskólans með gerð skólanámskrár. Jafnframt er mikilvægt að halda uppi góðum samskiptum við foreldra með öflugu upplýsingastreymi gegnum heimasíðu og með reglulegum upplýsingafundum. Þá er mikilvægt að móta starfmannastefnu til að efla stjórnun á stórum vinnustað og skýra verkskipulag innan stofnunar.
Áhersla verður lögð á fjölgun fagmenntaðra starfsmanna leikskólans, með það að markmiði að 50% starfsmanna verði fagmenntaðir í maí 2010.
Sveitarstjórn leggur áherslu á að efla samvinnu og samþættingu skólastiga. Því er Bright Start verkefnið sem þegar er hafið mjög mikilvægt. Til að styrkja starfið og stjórnun þess þarf að setja formlega á fót verkefnisstjórn sem samræmir starfið og stýrir þróun þess. Öflug kynning á verkefninu fyrir foreldrum og stöðug endurmenntun starfsmanna er lykilatriði í því að starfið skili árangri.
Engir biðlistar
Í Rangárþingi eystra eru engir biðlistar eftir leikskólaplássum og leggur sveitarstjórn áherslu á að halda þeirri stöðu.
Aðbúnaður í Hvolsskóla er einn sá besti sem býðst á Íslandi. Við undirbúning viðbyggingar Hvolsskóla 2003 kom stór hópur fólks úr samfélaginu saman og lagði grunn að námsumhverfi og uppbyggingu innri og ytri þátta skólastarfsins. Niðurstöður vinnuhópsins liggja til grundvallar því starfi sem skólinn byggir á og markar stefnuna til framtíðar. Sveitarstjórn Rangárþings eystra leggur áherslu á að efla innra starf skólans og hefur ráðist í úttekt Rannsóknarstofnunar KHÍ á skólastarfi Hvolsskóla. Sveitarstjórn leggur áherslu á að halda áfram því starfi og vinna að eflingu skólans á grundvelli úttektarinnar. Áfram verði lögð áhersla á að efla þátt foreldra í skólastarfinu og sífellt verði leitað leiða til að auka skilning og samvinnu heimila og skóla sem skili sér í betri aga, námsárangri og ánægju nemenda. Mikilvægt er að hlúa vel að starfsfólki skólans og einn þáttur í því er að móta starfsmannastefnu Hvolsskóla.
Sveitarstjórn Rangárþings eystra leggur áherslu á að efla Héraðsbókasafn Rangæinga. Bókasafnið er mennta-, menningar- og rafræn upplýsingamiðstöð Rangæinga. Bókasafnið er þjónustustofnun og því er hæfni, þátttaka, menntun og virkni starfsmanna einn mikilvægasti þátturinn í starfseminni. Það er mikilvægt að skýra hlutverk og starfssvið bókasafnsins og ákvarða framtíðarsýn þess m.a. með tilliti til húsakosts.
Sveitarstjórn leggur áherslu á öryggi í skólaakstri og hefur því mótað nýjar reglur varðandi útbúnað og aldur skólabíla. Mikilvægt er að annar akstur skólabarna á vegum sveitarfélagsins falli jafnframt undir þær öryggiskröfur. Jafnframt hafa verið settar viðmiðunarreglur varðandi hámarkslengd ferðar hvers skólabarns í skólabíl. Mikilvægt er að þróa þessar reglur áfram að fenginni reynslu af notkun þeirra. Sveitarstjórn leggur áherslu á góð samskipti við skólabílstjóra og samráð við þá þannig að þekking þeirra og reynsla nýtist sem best við skipulagningu og útfærslu aksturins. Jafnframt er mikilvægt að þau fyrirtæki sem taka að sér annan akstur barna á vegum skólans, uppfylli öryggisreglur sveitarfélagsins
Sveitarstjórn Rangárþings eystra leggur áherslu á að við Hvolsskóla starfi vel menntaðir einstaklingar. Til að efla menntun starfsmanna er nauðsynlegt að hvetja einstaklingana til endurmenntunar og/eða framhaldsmenntunar og kynna þá kosti sem í boði eru.
Sveitarstjórn Rangárþings eystra mun á þessu kjörtímabili ljúka byggingu viðbyggingar við Hvolsskóla þar sem Tónlistarskóli Rangæinga fær aðstöðu. Það er mikilvægt að tengja starfsemi Tónlistarskólans enn frekar við starfsemi Hvolsskóla enda er það stefna sveitarstjórnar að samvinna og samþætting skólanna verði sem mest sbr. lið 3.3.10.
Sveitarstjórn Rangárþings eystra leggur áherslu á eflingu menntunar. Nauðsynlegt er að efla tengsl milli skólastiga í þeim tilgangi að styrkja hverja einingu og efla samvinnu. Heildstæð skólastefna Rangárþings eystra verður byggð þannig upp að hlutverkið verður skilgreint og framtíðarsýninni lýst. Heildstæð skólastefna verður leiðarvísir fyrir skólasamfélagið í Rangárþingi eystra. Skólastefnuna á að vinna með allt skólastarf í huga og á hún því jafnt við um leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla. Stefnan mun skapa grunn að stefnumótun einstakra skóla og nýtist við eftirfylgni með starfsemi þeirra. Í skólastefnunni verður lögð áhersla á að barnið sé ávallt í brennidepli. Allt skólastarf á að mæta þörfum hvers og eins hvað varðar innihald náms og kennsluhætti, stuðla að vellíðan nemenda og hamingju þannig að þeir öðlist þroska, þekkingu og reynslu til að takast á við verkefni framtíðarinnar.
Í skólastefnunni skal lögð áhersla á gott samstarf og sátt um skólastarfið. Nemendur, foreldrar þeirra, kennarar og annað starfsfólk vinni saman að því að byggja upp jákvætt samfélag, góðan starfsanda og heilbrigðan aga í metnaðarfullu, skapandi og öruggu umhverfi. Grunnforsenda fyrir námi og kennslu í góðum skóla í lýðræðisþjóðfélagi byggir á faglegri stjórnun og forystu, fjölbreyttu vali á starfs- og kennsluaðferðum ásamt virkri þátttöku nemenda og foreldra í skólastarfinu.
Sveitarstjórn Rangárþings eystra leggur áherslu á að íbúar sveitarfélagsins eigi kost á því að mennta sig sem næst heimabyggð. Af þeim sökum vinnur sveitarstjórn að því ásamt öðrum sveitarfélögum að kanna grundvöll þess að koma á fót framhaldsskóla í sýsluna.
Sveitarstjórn Rangárþings eystra mun taka virkan þátt í starfi SASS að því að efla háskólanám á Suðurlandi með það fyrir augum að auka tækifæri íbúa sveitarfélagsins til þess að afla sér menntunar á háskólastigi nærri heimabyggð.
Sveitarstjórn Rangárþings eystra bætti á síðasta kjörtímabili aðstæður íbúa sveitarfélagsins til fjarnáms með því að ganga til samninga við Emax ehf. um háhraðanettengingu í dreifbýlinu. Nú er svo komið að fjöldi íbúa sveitarfélagsins stundar nám af einhverju tagi í fjarnámi. Sveitarfélagið vill leggja sitt af mörkum til að styrkja aðstæður nemenda í sveitarfélaginu enn frekar og tryggja þeim aðstæður og aðbúnað til að geta sinnt sínu námi. Af þeim sökum hefur byggðaráð Rangárþings eystra samþykkt að sköpuð verði vinnuaðstaða fyrir háskólanema og aðra sem stunda fjarnám. Nemendur geti þar stundað nám sitt og fræðistörf við góðar aðstæður og í samfélagi við aðra námsmenn.
Hvatt verði til samstarfs við nemendur á háskólastigi um gerð verkefna tengdum starfsemi í Rangárþingi eystra.
Sveitarstjórn Rangárþings eystra leggur áherslu á að leita leiða til að koma nýtingu húseigna ríkisins á Skógum, héraðsskólans, í viðunandi form.
Virðing fyrir menntun aukin
Sveitarstjórn Rangárþings eystra leggur höfuðáherslu á eflingu menntunar. Til að efla menntun á Suðurlandi þarf að auka virðingu fyrir menntun. Því er nauðsynlegt að auka umræðu um menntamál.