
Rangárþing eystra er eitt öflugasta landbúnaðarhérað landsins en sterkur landbúnaður er eitt helsta sérkenni sveitarfélagsins og sveitarstjórn vill stuðla að því að atvinnugreinin eflist og dafni.
Um leið og Rangárþing eystra vinnur að því að laða fyrirtæki á svæðið mun sveitarfélagið einnig standa vörð um þau sem fyrir eru.
Staðsetning, saga héraðsins og náttúrufegurð
Markmið sveitarstjórnar er að fjölga íbúum og atvinnutækifærum. Rangárþing eystra mun því leggja áherslu á markaðssetningu sveitarfélagsins sem vænlegs búsetukosts og ná samstarfi við forsvarsmenn fleiri atvinnufyrirtækja um uppbyggingu þeirra hér.
Sveitarstjórn hefur það markmið að íbúar hafi greiðan aðgang að upplýsingum um starfsemi, framtíðarsýn og starfsáætlun sveitarfélagsins.
Rangárþing eystra býr svo vel að eiga sex félagsheimili í félagi við ýmis starfandi félög í sveitarfélaginu. Sveitarfélagið stefnir að því að