-
Rangárþing eystra er framsækið og leiðandi sveitarfélag sem gegnir forystuhlutverki á sviði menntamála á Suðurlandi.
-
Sveitarstjórn Rangárþings eystra hefur það að leiðarljósi að efla menntun og styrkja þannig samfélagið. Menntun er undirstaða velferðar og aukin tækifæri til menntunar eru eitt stærsta hagsmunamál landsbyggðarinnar. Í Rangárþingi eystra býðst góð menntun í grunn- og leikskóla. Stefnt er að því marki að kanna möguleika á því að koma upp framhaldsskóla í Rangárvallasýslu og sveitarfélagið tekur þátt í því að efla háskólanám á Suðurlandi á vettvangi SASS. Sveitarfélagið eykur möguleika íbúanna til fjarnáms og býr þeim aðstöðu til að stunda sitt nám á faglegan hátt og við akademískar aðstæður.
-
Rangárþing eystra er öflugt og traust sveitarfélag sem gegnir mikilvægu hlutverki varðandi mótun búsetuskilyrða á Suðurlandi.
-
Sveitarfélagið er fjárhagslega traust og stendur ávallt við skuldbindingar sínar gagnvart íbúum og þeim sem það á í viðskiptum við.
-
Í Rangárþingi eystra er lögð áhersla á umhverfismál með það að markmiði að styrkja ímynd svæðisins sem leiðandi atvinnusvæðis í landbúnaði og matvælaframleiðslu.
-
Í Rangárþingi eystra er lögð áhersla á málefni fjölskyldunnar og einstaklingurinn er í brennidepli. Áhersla á forvarnir koma fram í öflugu starfi við mótun forvarnarstefnu Rangárvallasýslu og starfi á sviði félagsmála, íþrótta og frístundastarfi.
-
Rangárþing eystra er eftirsóttur vinnustaður fyrir metnaðarfulla einstaklinga með menntun, reynslu og hæfni til að takast á við áhugaverð og krefjandi verkefni. Aðstaða starfseminnar, tæki og aðbúnaður taki mið af því starfi sem fram fer.
-
Rangárþing eystra er virkur þátttakandi í eflingu atvinnulífs með því að laða að og leiða saman fjárfesta og vinna að fjármögnun nýrra atvinnutækifæra.
-
Stjórnvöld sveitarstjórnarmála geta ávallt borið traust til Rangárþings eystra hvað varðar fjármála- og stjórnunarleg málefni.
-
Stjórnendur og starfsmenn Rangárþings eystra eiga ávallt góð samskipti við samstarfs- og hagsmunaaðila.
-
Til að styrkja sóknarstöðu sína er Rangárþing eystra ávallt reiðubúið til að skoða möguleika á frekari sameiningu sveitarfélaga.
-
Meðferð opinberra fjármuna og þjónustustig eru tveir lykilþættir í starfsemi sveitarfélagsins. Mælistikur á árangur sveitarfélagsins er meðferð fjármuna, þekking til að veita þjónustu og hugmyndaauðgi starfsfólks sem sífellt leitar nýrra lausna til þess að ná tökum á þeim verkefnum sem mæta þeim.
|