21.01.2012

Þorrablót í Gunnarshólma

Hið árlega Þorrablót okkar Austur-Landeyja er líkt og vanalega fyrstu helgina í Þorra eða laugardaginn 21. janúar kl 20:00. Blótið hefst stundvíslega kl 20:45.

Miðar verða seldir í Gunnarshólma miðvikudaginn 18. janúar kl:16:00

Ef þið viljið nánari upplýsingar getið þið hringt í 8676039(Jón Óskar) eða 6986435(Hlín)


Undirbúningur er í fullum gangi og skemmtinefndin undir flugstjórn Guðna á Guðnastöðum er í óða önn að æfa annálinn og verður spennadi að sjá hvað verður tekið fyrir í okkar sveit.

Ásta og Didda sjá um Þorramatinn fyrir okkur að sinni alkunnu snilld og Hljómsveitin Brimnes frá Suður-Landeyjum sjá síðan um að skemmta okkur fram að mjöltum.


Hlökkum til að sjá ykkur
Kær kveðja:
Stjórnin
Til baka