
110 km – 48 km – 14 km
Ræsing
Olís Norðlingaholti (Reykjavík) 9. júlí 2011 kl. 8:00 fyrir 110 km
Selfossi (Byko) kl. 9:30 fyrir 48 km
Hella (Reykjagarði) kl. 11:00
Hjólað verður í fylgd lögreglu/Björgunarsveitar að Þrengslaafleggjara. Björgunarsveitin Dagrenning fylgir hópnum á Hvolsvöll.
Skráning:
Reykjavík - Hvolsvöllur 110km: Einungis verður hægt að skrá sig á netinu og ganga frá greiðslu (2000 kr.) í gegnum heimabanka. Netskráningu lýkur 7. júlí.
Smella hér fyrir skráningu í 110km.
Selfoss - Hvolsvöllur 48km: Bæði verður hægt að skrá sig á netinu og ganga frá greiðslu (2000 kr.) í gegnum heimabanka eða skrá sig á staðnum (milli kl. 8:30 og 9:15) og ganga frá greiðslu þar. Netskráningu lýkur 7. júlí. Einnig er hægt að skrá sig í gegnum upplýsingamiðstöðina Hvolsvelli, sími 487-8043 eða tourinfo@hvolsvollur.is
Smella hér fyrir skráningu í 48km
Hella - Hvolsvöllur 14 km: Þátttakendur skrá sig á upplýsingamiðstöðinni Hvolsvelli, sími 487-8043 eða tourinfo@hvolsvollur.is
eða á rásstað. Skráningargjald er 1000 krónur.
Flokkar
110 km opnir flokkar karlar og konur með tímatöku
48 km opinn flokkur karla og kvenna
14 km opinn flokkur karla og kvenna
Verðlaun
Glæsilega útdráttarverðlaun fyrir hverja leið. Verðlaun fyrir 1.-3. sæti í hvorum flokki á 110 km leið.
Verðlaunaafhending verður kl. 13:30 á miðbæjartúninu.
Sundlaugin á Hvolsvelli býður öllum keppendum í sund á keppnisdag.
Drykkjastöð
Ein drykkjarstöð á Hellu.
Léttar veitingar handa öllum keppendum í keppnistjaldi á miðbæjartúninu að lokinni keppni.
Flutningur fyrir og eftir keppnina
Hjólin: 500 kt. flutningur á hjólum. Gott að taka það fram við skráningu hvort áhugi sé fyrir þeirri þjónustu.
Keppendur: Áætlunarrúta á vegum Sterna kl: 17:00 (3200 kr. ekki innifalið í skráningagjaldinu). Áætlun Sterna: http://www.sterna.is/en/moya/ferdir/hopurview/10_10a_-_reykjavik_-_hvolsvollur_-_vik_-_reykjavikAth. Breytingar sem kunna að verða á áætlun, eru ekki á ábyrgð mótshaldara.
Viðgerðir
Byko - Intersport mun sjá um hjólaviðgerðir-stillingu fyrir keppnina á Hvolsvelli og Selfossi. Pantanir í síma 862-7598.
Ýmislegt
Keppnin er opin öllum 14 ára og eldri.
Hjálmaskylda er og eru keppendur á eigin ábyrgð í keppninni.
Vegurinn er opinn almennri umferð, keppendur eru beðnir að hjóla eftir umferðareglum.
Drykkjarstöð við Hellu er opin til kl. 12:00. Tímataka við markið hættir kl. 14:00