3. – 6. nóvember 2011
matur og menning úr héraði!
Söfn um allt Suðurland og í Vestmannaeyjum bjóða upp á fjölbreytta menningardagskrá helgina 3. – 6. nóvember n.k. Þetta er í fjórða sinn sem þessi hátíð er haldin sameiginlega fyrir allt Suðurland. Yfirskrift dagskrárinnar verður Safnahelgi á Suðurlandi, Matur og menning úr héraði því auk hins sögulega og menningarlega hluta dagskrárinnar verður minnt á gamlar og nýjar hefðir í matargerðarlist í héraðinu.