93. fundur Byggðarráðs Rangárþings eystra haldinn á skrifstofu sveitarfélagsins að Hlíðarvegi 16, Hvolsvelli, mánudaginn 25. janúar 2010 kl. 10:00
Mætt: Elvar Eyvindsson, sveitarstjóri, Ólafur Eggertsson, Haukur G. Kristjánsson og
Kristín Aradóttir, formaður byggðarráðs .
Elvar Eyvindsson ritaði fundargerð.
Kristín Aradóttir, formaður byggðarráðs setti fund og stjórnaði honum.
Hún leitaði eftir athugasemdum við boðun fundarins en engar komu fram.
- Erindi til afgreiðslu:
- Tillaga um að auglýsa stöðu skólastjóra Hvolsskóla. Umsóknarfrestur er til 20. Febrúar 2010.
Samþykkt
- Drög að jafnréttisáætlun Rangárþings eystra.
Vísað til sveitarstjórnar.
- 0911090 Bréf Haraldar Konráðssonar um að fá úthlutað lóð nr. 22 í Hvolstúni í staðinn fyrir lóð nr. 20 í Hvolstúni sem hann hafði áður fengið úthlutað.
Erindinu var frestað á fundi sveitarstjórnar 10. des.2009.
Samþykkt.
- 1001041 Bréf eigenda Grenstanga dags. 05.01.10 þar sem óskað er eftir staðfestingu sveitarstjórnar Rangárþings eystra á landsskiptum.
Um er að ræða 30,0 ha land með landnr. 219 080, tekna úr jörðinni Grenstanga, landnr. 163 859.
Lögbýlisréttur fylgir áfram Grenstanga landnr. 163 859.
Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við landskiptin.
- Gjaldskrá Leikskólans Arkar
Niðurfelling á afslætti til starfsmanna frá og með 1. júní 2010.
Samþykkt að fella niður sérstakan starfsmannaafslátt með atkvæðum KA og HGK, ÓE sat hjá.
- Bréf Þuríðar H. Aradóttur, markaðs- og kynningarfulltrúa varðandi þátttöku í sameiginlegu þjónustukorti.
Samþykkt.
- Erindi til kynningar:
- Ályktun fræðslufundar Matvælastofnunar dags. 13.01.10.
Byggðaráð tekur ekki afstöðu til faglegs mats sérfræðinga Matvælastofnunar vegna niðurfellingu varnarlína vegna búfjársjúkdóma en hvetur stofnunina til að auka fræðslu meðal búfjáreigenda um búfjársjúkdóma, smitleiðir þeirra og sjúkdómavarnir.
- Fundargerðir:
- 23. fundur skipulagsnefndar Rangárþings dags. 20.01.10
Mál fundargerðarinnar sem snúa að Rangárþingi eystra liðir 099, 112,113 og 114, ásamt umboði til byggingarfulltrúa skv. 1. lið Erindi og önnur mál.
Vísað til sveitarstjórnar
- 124. fundur skólanefndar Tónlistarskóla Rangæinga dags. 14.01.10.
Vísað til sveitarstjórnar
- 115. fundur stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs., dags. 15.01.10.
Vísað til sveitarstjórnar.
- 290. fundur stjórnar Atvinnuþróunarfélags Suðurlands dags. 13.01.10
- 28. Aðalfundur Sorpstöðvar Suðurlands dags. 15.10.09
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 12.00
Kristín Aradóttir
Ólafur Eggertsson
Haukur G. Kristjánsson
Elvar Eyvindsson