124. fundur sveitarstjórnar Rangárþings eystra haldinn á skrifstofusveitarfélagsins að Hlíðarvegi 16, Hvolsvelli, fimmtudaginn 14. janúar 2010 Kl. 16:00
Mætt: Elvar Eyvindsson, sveitarstjóri, Kristín Aradóttir, Sigrún Þórarinsdóttir, varamaður Hauks G. Kristjánssonar, Guðlaug Ósk Svansdóttir, Solveig Eysteinsdóttir, Óskar Magnússon, varamaður Unnar Brár Konráðsdóttur, Ágúst Ingi Ólafsson, skrifstofustjóri og Ólafur Eggertsson, oddviti sem setti fund og stjórnaði honum.
Unnur Brá Konráðsdóttir boðaði forföll.
Ólafur leitaði eftir athugasemdum við fundarboðið. Engar athugasemdir komu fram.
Fundargerð ritaði Ágúst Ingi Ólafsson.
Þetta gerðist:
- Bréf og erindi til afgreiðslu:
- Endurskoðun á samþykkt um stjórn og fundarsköp Rangárþings eystra, fyrri umræða.
Vísað til síðari umræðu.
- 1001015 Bréf eigenda Bakka, Rangárþingi eystra dags. 16. desember 2009, ósk um staðfestingu sveitarstjórnar Rangárþings eystra á landsskiptum.
Um er að ræða 8,0 ha lóð til hafnarframkvæmda með landnr. 219 046 tekna úr jörðinni Bakka, landnr. 163 845.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við landsskiptin.
- 1001016 Sigurður Flosason, bréf dags. 08.12.09, beiðni um styrk vegna Jazz hátíðar í Skógum sumarið 2010.
Samþykkt að veita styrk kr. 250.000,-
- 1001017 Bréf frá öldruðum og sjúkum sem fá heimaþjónustu í Rangárþingi eystra varðandi hækkun gjaldskrár fyrir heimaþjónustu.
Einnig lagt fram bréf frá þjónustuhópi aldraðra í Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu dags. 08.12.09 þar sem sveitarfélög eru hvött til að bjóða þessa þjónustu á eins vægu verði og hægt er.
Bókun sveitarstjórnar.
Félagmálanefnd Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu ákvað á fundi sínum miðvikudaginn 16. desember sl. að breyta ekki gjaldskránni.
Við útreikning hefur komið í ljós að hver unnin vinnustund í heimaþjónustu kostar sveitarfélögin á þjónustusvæðinu að meðaltali um 4100 kr. Þjónustuþegar greiða aldrei hærra gjald en kr. 1.000 á klst. Við endurskoðun gjaldskrárinnar var tekið mið af gjaldskrám sveitarfélaga vítt og breitt um landið og er hún byggð þannig upp að þeir sem tekjulægstir eru greiða minnst. Einnig er Félagsmálanefnd tilbúin til að skoða sérstök tilvik til gjaldlækkunar og koma til móts við þá sem þjónustuna nota eins og hægt er.
Félagsmálastjóri hefur svarað erindinu nánar til þjónustuhóps aldraðra í bréfi dags. 21.12.09.
- 1001011 Umferðarstofa, bréf dags. 06.01.10 varðandi umferðaröryggisáætlun.
Stefnt er að fundi með fulltrúum Umferðarstofu.
- Samkomulag milli Rangárþings eystra og Eggerts Haukdal.
Eggert Haukdal og Rangárþing eystra hafa náð samkomulagi vegna krafna sem Eggert hefur haft uppi á hendur sveitarfélaginu vegna kostnaðar og óþæginda sem hann telur sig hafa orðið fyrir í tengslum við opinbert mál sem rekið var á hendur honum vegna meintra fjármunabrota í störfum hans fyrir hönd sveitarfélagsins. Eggert var við endurupptöku málsins fyrir Hæstarétti sýknaður af öllum ákæruliðum um fjármunabrot í starfi sínu fyrir sveitarfélagið. Samkvæmt samkomulaginu hefur sveitarfélagið greitt Eggerti kr. 1.700.000 sem fullnaðargreiðslu án viðurkenningar aðila samkomulagsins á þeim sjónarmiðum sem haldið hefur verið fram í málinu fram til þessa dags. Telst málinu því nú alfarið lokið milli Eggerts og Rangárþings eystra.
Bókunin samþykkt með 6 atkvæðum SE situr hjá.
- Bréf Kvenfélagsins Hallgerðar dags. 14.01.10 þar sem óskað er eftir að fá herbergi í félagsheimilinu Goðalandi til afnota fyrir félagsstarf auk aðstöðu undir ýmsar eigur kvenfélagsins.
Samþykkt samhljóða.
- Bréf og erindi til kynningar:
- 0912035 Fornleifavernd ríkisins, bréf dags. 18.12.09, Hallgeirseyjarhjáleiga - deiliskipulag.
- Fundargerðir:
- 92. fundur byggðarráðs Rangárþings eystra dags. 06.01.10 Staðfest.
- 30. fundur byggingarnefndar Rangárþings dags. 06.01.10
Tekið skal fram vegna liðar 361 að sveitarstjórn hefur ekki tekið endanlega ákvörðun um framkvæmdir. Sveitarstjórn staðfestir þá liði fundargerðarinnar sem snúa að Rangárþingi eystra.
- 40. fundur sameiginlegrar barnaverndarnefndar Rangárvalla- og Vestur- Skaftafellssýslu dags. 25.11.09
- 41. fundur sameiginlegrar barnaverndarnefndar Rangárvalla- og Vestur- Skaftafellssýslu dags. 16.12.09
- Framhaldsskólanefnd Rangárvallasýslu, fundur með mennta- og menningarmálaráðherra dags. 07.01.10
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:40
Elvar Eyvindsson
Ólafur Eggertsson
Óskar Magnússon
Kristín Aradóttir
Guðlaug Ósk Svansdóttir
Sigrún Þórarinsdóttir
Solveig Eysteinsdóttir