
|
|
|||
|
|
|||
Almannavarnanefnd Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu boðar til neðangreindra íbúafunda:
Mánudaginn 15. mars 2010
kl. 10:30 Goðalandi, Fljótshlíð
kl. 14:00 Gunnarshólma, A-Landeyjum
kl. 20:00 Hvolnum, Hvolsvelli
Þriðjudaginn 16. mars 2010.
kl. 10:30 Njálsbúð, V-Landeyjum
kl: 14:00 Heimalandi, V-Eyjafjöllum.
kl. 20:00 Leikskálar, Vík
Miðvikudaginn 17. mars 2010.
kl. 10:30 Fossbúð, A-Eyjafjöllum
kl:14:00 Tunguseli, Skaftártungu
kl: 20:00 Kirkuhvoli, Kirkjubæjarklaustri
Á fundunum verður farið yfir hættumat vegna eldgosa og jökulhlaupa úr Eyjafjalla- og Mýrdalsjökli, stöðuna í dag, skipulag almannavarna og hvernig staðið verði að rýmingu svæðisins.
Rýming vegna goss í Eyjafjallajökli:
Vegna jarðskjálftavirkni í Eyjafjallajökli skal tekið fram að rýming svæðisins er eftirfarandi: Fljótshlíð, allir bæir ofan þjóðvegar að Deild og allir bæir neðan þjóðvegar, Landeyjar, Bakkabæir og Móeiðarhvoll rýma á Hvolsvöll. Vestasti hluti Vestur-Eyjafjalla, þ.e. frá Stóru-Mörk að Heimalandi og allir bæir neðan þjóðvegar að Efri-Hól, rými á Heimaland. Gjósi syðst í jöklinum getur komið til lítilla en snöggra hlaupa, annars vegar á svæðinu frá Núpi að Moldnúpi og hinsvegar á svæðinu frá Þorvaldseyri að Hrútafelli. Á þessum svæðum ber íbúum við fjallið að rýma upp í hlíðina en íbúum neðar á svæðinu að rýma stystu leið burt. Farið verður ýtarlega yfir þessa rýmingu á íbúafundunum.
Fram mun koma í boðun Neyðarlínu til íbúa hvert þeim beri að rýma.
Almannavarnanefnd Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu