26.1.2010 16:10

Áhættumati lokið fyrir sveitarfélagið

Unnið við viðbyggingu áhaldahússins s.l. vor.
Vinna við gerð áhættumats í öllum deildum sveitarfélagsins Rangárþings eystra sem hófst í haust er nú lokið.

Unnið hefur verið markvisst að úttekt stofnananna í samvinnu við Vinnueftirlitið. Allar stofnanir sveitarfélagsins voru heimsóttar og farið yfir vinnuaðstöðuna með starfsfólki á hverjum stað. Þar var farið yfir alla þætti sem koma að vinnuumhverfi starfsmanna m.t.t. líkamlegs vinnuálags, meðferð efna, vinnuaðstöðu ofl. Með þessu verkefni hefur sveitarfélagið gert heildarúttekt á sínum vinnustöðum og nú er til heildaryfirlit yfir það sem vel er gert og einnig þau atriði sem þarfnast úrbóta. Í framhaldi af þessari úttekt verður unnið að úrbótum sem yfirmenn eða skipaðir öryggisfulltrúar sjá um að fylgja eftir.

Einar Magnússon var verkefnastóri áhættumatsins í þessu verki og sá um úttektina. Hann hefur skilað inn fullnaðarskýrslu til Vinnueftirlitsins og svo vel þótti til takast að nú hefur Vinnueftirlitið beðið Einar að halda erindi um þetta verkefni á ráðstefnu um vinnuvernd í næsta mánuði.




Til baka