6.10.2009 12:04

Kjötsúpuhátíðin 2009

Gæsin var gripin er hún mætti á svæðið
Hausthátíð Rangárþings eystra eða Kjötsúpuhátíðin eins og hún er jafnan kölluð meðal heimamanna var haldin í blíðskaparveðri s.l. laugardag.

Dagurinn hófst með Víðavangshlaupi Íslands sem HSK hafði veg og vanda að.  Dagskráin við Sögusetrið hófst svo laust eftir hádegi. Þar var að finna ýmislegt fyrir alla fjölskylduna. Bræðurnir Hlynur og Bergsveinn Theódórssynir voru kynnar hátíðarinnar og stóðu sig eins og hetjur við að halda utan um dagskránna sem heppnaðist ljómandi vel. Sláturfélag Suðurlands veitir kjötsúpu á hverju ári og yfir 700 skammtar eða um 150 lítrar af súpu fóru í þetta skiptið.

Kassabílarallið vakti mikla lukku og var mikið lagt þar í meðal keppenda bæði í smíði bílanna og í keppninni sjálfri. Liðið Fireball var með besta tímann á braut en Gilsbakkagaurarnir hlutu verðlaun fyrir frumlegasta bílinn.

Hreystikeppnin var á sínum stað, þar sem Austur-Landeyingar héldu uppteknum hætti og sigruðu keppnina annað árið í röð. Svo vildi til að verið var að gæsa liðsmann Vestur-Landeyinga þennan dag og var hún því klædd upp í gæru og var hún einnig með horn. Bessi var ekki lengi að leggja hana á flötina og byggingardæma gripinn með dyggri aðstoð Gunnhildar Jónsdóttur. Þessi uppákoma vakti mikla kátínu meðal áhorfenda. Gæsin náði hins vegar að svara fyrir sig er hún söng dúett með Bessa stuttu síðar.

Söngkeppni barnanna var á sínum stað í dagskránni og fengu allir þátttakendur viðurkenningu fyrir sitt framlag.

Veitt voru verðlaun í teiknisamkeppni barnanna. Veitt voru þrenn verðlaun í tveim flokkum, s.s. besta/vandaðasta myndin, frumlegasta myndin og mestu framför í myndmennt á yngsta- og miðstigi.

Efnt var til keppni um besta berjaréttinn og bárust þrír réttir til þátttöku. Besti rétturinn var Berjapæ frá Sigríði O. Erlendsdóttur. í öðru sæti var Bláberja eplakaka á hveitis frá Hrafnhildi Óskarsdóttur. Hún átti einnig réttinn sem hafnaði í þriðja sæti en það var Bláberjabrauð úr kartöflumjöli.

Góð þátttaka var í markaðnum eins og ávallt og þótti vel til takast. Heimabakstur og landbúnaðarafurðir seldustu upp og vel var haft að handverkinu.

Tónlistaruppákomur voru á sviðinu allan daginn. Hljómsveitin Rimmugígur í forystu Jónínu Aradóttur fyrrum skrifstofudömu Rangárþings eystra hóf dagskránna og hljómsveitin Eins og hinir slógu botninn í dagskránni með nokkrum vel völdum lögum. Þar á milli spiluðu nokkrir ungir og efnilegir tónlistarmenn sveitarfélagsins ásamt einni ungri hljómsveit úr Mýrdalnum, Enter.

Í tilefni af Hausthátíðinni var efnt til keppni um bestu ljósaskreytinguna á lóð. Það var gaman að sjá hversu margir tóku þátt og það má með sanni segja að þorpið hafi lýstst upp um helgina. Það kom í hlut Guðrúnar Ósk Birgisdóttur og Björgvins Bjarnasonar í Litlagerði 18. Að mati dómnefndar var vel til vandað og natni í hverju horni. Skreytingarnar voru einnig vel í anda dagsins þar sem vísað var til búsáhaldarbyltingarinnar fyrir ári síðan.

Umhverfisverðlaun hausthátíðarnefndar Rangárþings eystra voru afhent á laugardaginn. Viðurkenningu fyrir fegursta garðinn fengu hjónin Steinunn Arnardóttir og Tryggvi Bjarnason, Túngötu 1 á Hvolsvelli. Fegursta gatan var valin Njálsgerði á Hvolsvelli, Dvalar- og hjúkrunarheimilið Kirkjuhvoll var valið snyrtilegasta iðnaðar- og þjónustufyrirtækið og viðurkenning fyrir snyrtilegasta býlið kom í hlut hjónanna Guðlaugar Guðlaugsdóttir og Hlyns Snæ Theódórssonar á Voðmúlastöðum í A-Landeyjum.

Geysilega góð þátttaka var í ljósmyndasamkeppnina sem efnt hefur verið til árlega í tengslum við hátíðina. Þemað í ár var ljósið og bárust 86 myndir til þátttöku. Mikill vandi var fyrir dómnefndina að velja úr þær þrjár bestu, því að margar mjög góðar myndir voru í keppninni. Niðurstaðan var þessi: 1. Sæti: Ljósárgil e. Jón Stefánsson Hvolsvelli, 2. Sæti: Ljós og skuggi e. Jóna Sigurþórsdóttir Skíðbakka, 3. Sæti: Geislar e. Þorgeir Sigurðsson Ásólfsskála. Sú nýbreytni var höfð á í þetta skiptið að gestir Sögusetursins og hátíðarinnar gafst kostur á að velja bestu myndina. Mikil þátttaka var í þessu vali og réðust úrslit ekki fyrr en á lokastigunum. Besta myndin í þessum flokki voru Geislar Þorgeirs Sigurðssonar.

Styrktaraðilar hátíðarinnar fá kærar þakkir fyrir veittan stuðning; Húsasmiðjan Hvolsvelli, Fóðurblandan, VÍS, Nýi Landsbankinn, A4, Mjólkursamsalan, Gestgjafinn, Vífilfell, Kjörís og að sjálfsögðu Sláturfélag Suðurlands sem bauð okkur uppá ljúffenga kjötsúpu.

Hausthátíðarnefnd er skipuð sjálfboðaliðum sem hafa lagt mikla vinnu í undirbúning og nefndinni innan handar alla helgina voru einnig nemendur 10. bekkjar Hvolsskóla. Allir þessir aðilar eiga hrós skilið fyrir vel heppnaða hátíð. Ég þakka kærlega fyrir mig.

Þuríður Halldóra Aradóttir, markaðs- og kynningarfulltrúi Rangárþings eystra




Til baka