18.5.2009 15:47

Fyrsta hlassinu sturtað í varnargarða við Landeyjahöfn

Það var sól og blíða s.l. laugardag þegar fjöldi manns var saman komin í Bakkafjörunni til að fylgjast með þegar fyrsta hlassinu var sturtað í nýja varnargarða fyrir Landeyjahöfn.

Á laugardag náðist sá áfangi í gerð Landeyjahafnar í Bakkafjöru, að fyrsta grjóthlassinu í fyrirhuguðum brimvarnar-görðum var komið fyrir í fjöruborðinu. Viðstaddir voru fulltrúar Siglingastofnunar, en stofnunin annaðist rannsóknir, hönnun og umsjón um smíði hafnarinnar. Einnig fulltrúar samgönguráðuneytis, verktakans Suðurverks, sveitastjórnar Rangárþings eystra og fleiri.

Í Landeyjahöfn verða gerðir tveir um 700 metra bogadregnir garðar sem munu verja höfnina og ferjubryggjuna gegn ágangi sjávar. Efnismagnið sem þarf í svo öflug mannvirki verður alls um 1,3 milljón tonn af grjóti en heildarmagnið í verkinu verður um 2 milljón tonn. Vegagerð að hafnarstæði frá námum í Kattarhrygg í Seljalandsheiði hófst sl. haust en búið er að safni 1,5 milljón tonnum af grjóti á Markarfljótsaura fyrir ofan Hringveginn.

Um 80 starfsmenn Suðurverks munu starfa við verkið í sumar og verða alls tólf námutrukkar munu keyra grjót niður í brimvarnargarðana dag og nótt, en sumir þessara bíla geta tekið allt að 55 tonnum af grjóti í hverri ferð. Á hverjum sólarhring munu því um 10 þúsund tonn af grjóti bætast við garðana, sem eru mikilvæg undirstaða að þeirri samgöngubót við Vestmannaeyjar sem höfninni er ætlað að verða. Gert er ráð fyrir að uppbyggingu brimvarnargarðanna ljúki í október á þessu ári. Á þessum stutta tíma mun Bakkafjara því taka miklum stakkaskiptum bæði í ásýnd og gagnsemi. Verklok við höfnina eru ráðgerð í júlí 2010 og því stefnt er að vígslu nýju hafnarinnar næsta sumar.

Myndir frá framkvæmdum er að finna inn á myndasafni á vef sveitarfélagsins.




Til baka