18.3.2009 11:26

Sjúkraþjálfun á Hvolsvelli
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Árni Þorgilsson, formaður Rauða Kross deildar Rangárvallasýslu, Magnús Skúlason, forstjóri HSu og Unnur Brá Konráðsdóttir, sveitarstjóri

Opnuð hefur verið aðstaða fyrir sjúkraþjálfun í Heilsugæslustöðinni á Hvolsvelli. Var hún innréttuð með stuðningi Rauðakrossdeildar Rangárvallasýslu og fyrir framlag frá Kirkjuhvoli af erfðafé Jóns Tómassonar frá Uppsölum.

Er þetta mikil lyftistöng fyrir samfélagið, því þessa þjónustu hefur sárlega vantað í sýsluna þar sem sjúkraþjálfari staðsettur á Hellu hefur ekki annað eftirspurn. Hefur fólk því þurft að sækja þessa þjónustu til Selfoss eða jafnvel lengra. Þessi aðstaða og sú þjónusta sjúkraþjálfara, sem þar fer fram, bætir því verulega heilbrigðisþjónustu í héraðinu.

Aðstaðan hefur verið leigð út og starfa tveir sjúkraþjálfarar við hana, þær Hjördís Brynjarsdóttir í fullu starfi og Valeria Sicoli að hluta.

Við óskum HSU og íbúum svæðisins til hamingju með nýja aðstöðu.




Til baka