20.1.2009 13:25

Fjárhagsáætlun 2009

Séð yfir iðnaðarsvæðið á Hvolsvelli. Kirkjuhvoll í forgrunni. Mynd: Frank Bradford
Sveitarstjórn samþykkti fjárhagsáætlun Rangárþings eystra fyrir árið 2009 á fundi sínum þann 8. janúar 2009 en áætlunin er unnin í góðri samvinnu meiri- og minnihluta í sveitarstjórn.

Fjárhagsáætlunin einkennist af því efnahagsástandi sem nú ríkir í þjóðfélaginu. Gert er ráð fyrir að framlag jöfnunarsjóðs til sveitarfélagsins dragist verulega saman á árinu og aukin verðbólga mun hafa í för með sér hækkun fjármagns- og rekstrarkostnaðar. Til að bregðast við þessu ástandi gerir sveitarstjórn kröfur til stjórnenda stofnana sveitarfélagsins um hagræðingu í rekstri og lækkun rekstrarkostnaðar.

Gerð fjárhagsáætlunar er erfið í árferði því sem nú ríkir þar sem nær ógerlegt er að meta hvernig fjárhagslegt umhverfi þróast á árinu. Fjárhagsáætlun verður því endurskoðuð í lok apríl og aftur í lok september. Tilgangur þess er að fylgjast enn betur en áður með því hvort forsendur fjárhagsáætlunarinnar standist og bregðast við breyttum aðstæðum ef þörf krefur.

Útsvarsprósenta ársins 2009 verður 13,28%. Gjaldskrár hækka að jafnaði sem nemur neysluvísitölu án húsnæðisverðs. Laun sveitarstjórnar, nefndarmanna og sveitarstjóra fylgja þróun þingfarakaups og lækka því um 7,5%.

Dregið verður úr yfirvinnu alls staðar þar sem slíkt er mögulegt og allra leiða leitað til að minnka rekstrarkostnað stofnana sveitarfélagsins. Í fjárfestingum er gert ráð fyrir áframhaldandi framkvæmdum við tónlistarskóla sem nema muni 200 m.kr. Gert er ráð fyrir viðhalds-framkvæmdum að fjárhæð 25 m.kr. Lánsfjárvilyrði liggur fyrir frá Lánasjóði íslenskra sveitarfélaga að fjárhæð 150 m.kr. að því gefnu að sjóðurinn nái að fjármagna sig.

Á árinu 2008 var hætt við útboð viðbyggingar við íþróttahúsið á Hvolsvelli og ekki er gert ráð fyrir framkvæmdum þar á árinu 2009. Ekki er gert ráð fyrir framkvæmdum við gatnagerð en íbúðarhúsalóðir eru enn lausar til úthlutunar í Hvolstúni, miðbænum og iðnaðarlóðir við Ormsvöll.

Áætlaðar heildartekjur Rangárþings eystra (aðalsjóðs, A- og B- hluta) nema alls kr. 966 milljónum fyrir árið 2009.Þar af eru skatttekjur áætlaðar 521 m.kr. Framlög Jöfnunarsjóðs eru áætluð tæplega 267 m.kr. og aðrar eru 177 m.kr. Rekstrargjöld og reiknaðar afskriftir samstæðu nema alls 911 m.kr. Niðurstaða samstæðu án fjármagnsliða er því jákvæð um 55 m.kr. Fjármagnsliðir eru áætlaðir 68 m.kr. og rekstrarniðurstaða samstæðu því neikvæð um 13 m.kr. Fjármagnsliðir hafa hækkað mikið á milli ára og helgast það af þeirri miklu verðbólgu sem hér hefur ríkt að undanförnu. Árið 2009 er gert ráð fyrir um 8,5% verðbólgu á ársgrundvelli.

Í lok árs 2009 verða langtímaskuldir samstæðu 608 m.kr. Lífeyrisskuldbindingar sveitarsjóðs verður 69 m.kr. Gert er ráð fyrir afborgunum langtímalána rúmlega 54 m.kr. og nýrri lántöku á árinu 2009,150 m.kr. Fasteignaskattur af húsnæði í A-flokki verður 0,36% af fasteignamati. Fasteignaskattur af húsnæði í B-flokki er 1,32% skv. ákvæðum laga um innheimtu fasteignaskatts af húsnæði í eigu ríkisins.




Til baka