
Byggingar- og skipulagsmál
Byggingar- og skipulagsfulltrúaembætti Rangárþings bs
Byggingar- og skipulagsfulltrúaembætti Rangárþings bs.
Byggðasamlagið var stofnað og tók til starfa í mars 2007. Það þjónar allri Rangárvallasýslu og eru 3 sveitarfélög aðilar að því, Rangárþing ytra, Rangárþing eystra og Ásahreppur.
Stjórn Byggingar- og skipulagsfulltrúaembætti Rangárþings bs:
Aðalmenn
Varamenn
Unnur Brá Konráðsdóttir, formaður
Ágúst Ingi Ólafsson
Örn Þórðarson, varaformaður
Sigurbjartur Pálsson
Egill Sigurðsson, meðstjórnandi.
Erlingur Freyr Jensson
Meðferð skipulags- og byggingarmála er samkvæmt ákvæðum laga nr. 73/1997
Umsóknir um byggingarleyfi og framkvæmdaleyfi skulu lagðar inn hjá byggingar- og skipulagsfulltrúa sem fer yfir umsóknir og athugar hvort með fylgi nauðsynleg gögn. Byggingar- og skipulagsfulltrúi leggur umsóknir fyrir skipulags- og byggingarnefndir þegar tilskilin gögn hafa verið lögð fram. Skipulags- og byggingarnefndir afgreiða umsóknir sem uppfylla skilyrði skipulags- og byggingarlaga og reglugerða. Sveitarstjórn þarf að staðfesta afgreiðslur skipulags- og byggingarnefnda.
Skipulagsnefnd fjallar um og gerir tillögur um afgreiðslur á skipulagstillögum.
Byggingar- og skipulagsfulltrúi sér um að auglýsa skipulagstillögur samkvæmt heimild sveitarstjórnar.
Framkvæmdaaðilar gera tillögur að deiliskipulagi þar sem nauðsyn ber til. Framkvæmdaaðilar geta gert tillögur að breytingu á aðalskipulagi ef það er nauðsynlegt vegna framkvæmda eða afgreiðslu á tillögu að deiliskipulagi. Sveitarstjórn annast gerð aðalskipulags. Svæðisskipulög taka yfir fleiri en eitt sveitarfélag og eru gerð í samstarfi sveitarstjórna sem skulu mynda um það samvinnunefnd og einnig á vegum Skipulagsstofnunar og Samvinnunefndar um svæðisskipulag miðhálendis Íslands.