22.2.2010 11:51

Vinadagar 2010

Opinn fundur vegna Vinadaga 2010 í kvöld mánudag 22. febrúar kl 20:00 í Litla-Salnum í Hvolnum.

Allir velkomnir!

Vilt þú taka þátt? Hefur þú einhverjar hugmyndir fyrir Vinadaga í sumar? Eða ertu kannski dulítið forvitin/n um hvað málið snýst?
Endilega kíktu við!


Vinadagar á facebook: www.facebook.com/vinadagar
Einnig má senda póst á vinadagar@gmail.com

Grunnhugmynd - (tekið af síðu vinadaga):
1.
Að skapa vinsamlegt og iðandi umhverfi einu sinni á ári fyrir Rangæinga núverandi og fyrrverandi, ásamt gestum þeirra, til að koma saman og skemmta sér, með menningar atriðum ættuðum úr heimabyggð. Allir velkomnir.

Markmið: Skapa góðar minningar! Efling ferðaþjónustu og Menningarstarf í Rangárþingi.

2.
Að búa til vettvang fyrir Lista og Handíða-fólk á öllum aldri og öllum greinum til að kynna sig og/eða selja verk sín.

3.
Að skapa opinbera hefð meðal Rangæinga til að rækta samband sitt við hvern annan og vini sína.



Til baka