20.1.2010 08:30
23. fundur skipulagsnefndar Rangárþings bs

23. fundur í skipulagsnefnd Rangárþings bs. miðvikudaginn 20. janúar 2010 kl. 8.30, að Ormsvelli 1, Hvolsvelli.

Mætt á fundinn : Eydís Indriðadóttir, oddviti Ásahrepps, Ólafur Eggertsson, oddviti Rangárþings eystra og Þorgils Torfi Jónsson, oddviti Rangárþings ytra.


RANGÁRÞING EYSTRA:


099 2009 Landeyjahöfn Rangárþingi eystra, afgreiðsla deiliskipulags
eftir auglýsingu.

Deiliskipulagstillagan fyrir Landeyjahöfn lögð fram til endanlegrar afgreiðslu.
Engar athugasemdir bárust við auglýsta tillögu.
Gerðar hafa verið breytingar eftir auglýsingu sem teljast minniháttar. Viðlegukanti hefur verið hliðrað, og innri brimgarði hefur verið breytt til þess að minnka óróleika hafnarinnar.

Gangstígum, bílastæðum, staðsetningu útsýnispalls og afmörkun vara bílastæða hefur verið breytt í samræmi við það. Auk þess sem lóð nr. 1 stækkar um 79m2. Umræddar breytingar eru gerðar að beiðni Siglingastofnunar og eftir ábendingum skipstjórnarmanna.

Greinargerð hefur verið leiðrétt í samræmi við ábendingar skipulagsstofnunar dag. 21. des. 2009. Þar sem m.a. hefur verið bætt inn umhverfisskýrslu og í samræmi við 9 gr. laga nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana, er gerð grein fyrir hvernig umhverfisskýrsla fellur inn í afgreiðslu deiliskipulagsins.

Skipulagsnefnd staðfestir deiliskipulagið og umhverfisskýrslu eftir auglýsingatíma, og mælist til að það verði sent til Skipulagsstofnunar til afgreiðslu.

112 2010 Ystabælistorfa í Rangárþingi eystra, deiliskipulag frístundahúsalóða.

Skipulagssvæðið nær yfir landareignirnar Ystabælistorfu 1, 2 og 3 í Rangárþingi eystra. Landareignirnar eru 5,4 ha hver, eða samtals 16,2 ha.

Á lóð Ystabælistorfu 1 er gert ráð fyrir tveimur byggingarreitum, einum fyrir frístundahús og einum fyrir hesthús. Á lóð 2 er gert ráð fyrir einum byggingarreit fyrir frístundahús. Á lóð 3 er gert ráð fyrir þremur byggingarreitum fyrir frístundahús.

Aðkoma að svæðinu er um þjóðveg nr.1 og um héraðsveg nr. 243 í Austur-Eyjafjöllum.

Afgreiðslu frestað.

113 2010 Torfastaðir deiliskipulag íbúðar- og útihúsalóða.

Deiliskipulagið nær til um 5 ha. svæðis úr landi Torfastaða og tekur til þriggja íbúðarhúsalóða auk þriggja lóða fyrir gripahús og skemmur. Fyrir eru á svæðinu íbúðarhús, vinnustofa, lítið baðhús og lítið gestahús. Aðkoma að svæðinu er um Fljótshlíðarveg (261) og um aðkomuveg í landi Torfastaða.

Afgreiðslu frestað.

114 2010 Matslýsing vegna fyrirhugaðs deiliskipulags skálasvæðis í Emstrum, Rangárþingi eystra.

Lögð er fram matslýsing, vegna umhverfismats á tillögu að deiliskipulagi skálasvæðis við Efri-botna í Emstrum, Rangárþingi eystra

Skálasvæði í Efri-Botnum í Emstrum er innan svæðis miðhálendisins og fellur því undir lög um mat á umhverfisáhrifum áætlana, nr. 105/2006. Svæðið fellur undir þjóðlendur sbr. úrskurð óbyggðanefndar og 2. gr.laga nr. 58/1998 um þjóðlendur og er því á forræði forsætisráðuneytisins. Ferðafélag Íslands hefur um árabil haft aðstöðu í Emstrum og byggt upp tvo gistiskála, skálavarðahús og bað- og salernishús.

Deiliskipulagssvæðið er um 1,3 ha. að stærð og nær til núverandi bygginga og tjaldsvæðis.

Í deiliskipulagstillögunni er gert ráð fyrir að gistiskálar geti verið 3, og að skálavarðarhús og salernishús geti stækkað til að anna þeim ferðamannafjölda sem leið á um svæðið. Megin tilgangur deiliskipulagsins er að skilgreina lóðir og byggingarreiti utan um það sem fyrir er og tryggja að unnt sé að byggja við og stækka skála og salernisaðstöðu eftir því sem ferðamannaþunginn á svæðinu eykst.

Skipulagsnefnd samþykkir matslýsingu skálasvæðis í Emstrum, og mælist til að hún verði send til Skipulagsstofnunar til umsagnar.

RANGÁRÞING YTRA:


115 2010 Dynskálar á Hellu, deiliskipulag verslunar- og þjónustulóða auk iðnaðarlóða á lóðum 18-36. Einnig breytingu á vegstæði Suðurlandsvegar.

Deiliskipulagið tekur til breytinga á vegstæði í gegnum Hellu, auk verslunar- og þjónustulóða við Dynskála 18 og 20.

Vegurinn í gegnum Hellu verður færður sunnar á um 350 metra kafla. Þá er um að ræða 8. iðnaðarlóðir frá Dynskálum 22-36. Á lóðum 28-36 er gert ráð fyrir stækkun byggingarreits á hverri lóð til suðurs.

Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagstillöguna og mælist til að hún verði auglýst, samkvæmt lögum.

116 2010 Dynskálar á Hellu, iðnaðarlóðir, austursvæði, lóðir 40-53.

Iðnaðarsvæðið afmarkast af Suðurlandsvegi að sunnan, fyrirhuguðu íbúðarsvæði á Öldum norðanverðu, og að núverandi iðnaðarlóð nr. 36 við Dynskála.

Gert er ráð fyrir 11 lóðum, þar af eru tvær þegar byggðar.

Aðkoma að svæðinu verður um nýja vegtengingu af Suðurlandsvegi.

Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagstillöguna og mælist til að hún verði auglýst, samkvæmt lögum.


117 2010 Deiliskipulag frístundahúsalóða í landi Múla, Rangárþingi ytra.

Deiliskipulagið tekur til 9 frístundahúsalóða á u.þ.b. 5ha spildu úr landi Múla.

Lóðirnar eru frá 2.252m2 – 5.440m2. Ein þeirra er þó sínu stærst, eða 18.825m2.

Aðkoma að svæðinu er um Landveg (nr. 26).

Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagstillöguna og mælist til að hún verði auglýst, samkvæmt lögum.

118 2010 Þjóðólfshagi í Rangárþingi ytra, breyting á gildandi deiliskipulagi frístundabyggðar.

Um er að ræða breytingu á gildandi deiliskipulagi frístundabyggðar frá 7. júlí 1999.

Eldra deiliskipulag tekur til ca. 40 ha. lands, og eru um 30 ha. undir frístundabyggð.

Helstu breytingar eru:
Byggingarmagn á lóðum er aukið og hámarksnýtingarhlutfall er 0,03.
Afmörkun lóða F30, F31, F32 og F33 breytist nokkuð og lóðir F34 og F35 eru nýjar.

Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytinguna og mælist til að hún verði auglýst, samkvæmt lögum.

119 2010 Litli-Klofi í Rangárþingi ytra, deiliskipulag frístundabyggðar.

Deiliskipulagið tekur til 8 lóða á tæplega 24 ha. lands í Litla-Klofa.

Stærð lóða er frá 0,79 ha. - 18,4 ha. Á hverri frístundahúsalóð verður leyft að byggja allt að 200m2 frístundahús. Aðkoma að svæðinu er um Landveg (nr. 26) og um afleggjara að landi Stóru-Valla.

Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagstillöguna og mælist til að hún verði auglýst, samkvæmt lögum.

120 2010 Deiliskipulag frístundalóðar í Bakkaseli, spildu úr landi Efra-Sels, Rangárþingi ytra.

Deiliskipulagið tekur til um 10 ha. spildu í Bakkaseli í Rangárþingi ytra.

Deiliskipulagið felur í sér, byggingu tveggja frístundahúsa, tveggja gestahúsa og skemmu. Aðkoma að Bakkaseli er um Bjallaveg (nr. 272) og aðkomuveg að frístundasvæðinu.

Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagstillöguna og mælist til að hún verði auglýst, samkvæmt lögum.

121 2010 Reynifell í Rangárþingi ytra, breyting á deiliskipulagi frístundabyggðar.

Breytingin nær til tveggja lóða þ.e. nr B-5 og B-7 í landi Reynifells. Þær eru nú samtals 20.215m2. Eftir breytingu verða til 4 lóðir, B-5a, B-5b, B-7a og B-7b, hver 5.054m2 að stærð.

Afgreiðslu frestað.

Erindi og önnur mál:

Skipulags- og byggingarfulltrúi leggur fram ósk um, að fá heimild til að stimpla og undirrita deiliskipulagsuppdrætti og breytingar á þeim til staðfestingar á ákvörðunum hreppsnefnda/sveitarstjórna um afgreiðslu, enda hafi viðkomandi mál hlotið lögformlegt skipulagsferli.

Skipulagsnefnd samþykkir að veita skipulagsfulltrúa heimild til að stimpla og undirrita deiliskipulagsuppdrætti og breytingar á þeim til staðfestingar á ákvörðunum sveitarstjórna um afgreiðslu enda hafi viðkomandi mál hlotið lögformlegt skipulagsferli. Skipulagsnefnd mælist til að sveitarstjórnir staðfesti ofangreint umboð.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl: 10.30


Eydís Indriðadóttir, oddviti Ásahrepps
Rúnar Guðmundsson, skipulagsfulltrúi
Ólafur Eggertsson, oddviti Rangárþings eystra
Þorgils Torfi Jónsson, oddviti Rangárþings ytra